Líkir honum við þekktan mann sem átti erfitt með drykkjuna
Alan Shearer, fyrrverandi framherji Newcastle og enska landsliðsins, segir Jack Grealish minna sig á goðsögnina Paul Gascoigne, bæði innan vallar og utan.
Grealish hefur verið settur út í kuldann hjá Everton eftir að hafa brotið agareglur félagsins. Englendingurinn er sagður hafa sleppt æfingu án leyfis eftir að hafa farið út að skemmta sér.
David Moyes hefur ákveðið að halda honum utan leikmannahópsins í þremur leikjum í röð.
Shearer telur þó að Grealish geti enn snúið stöðunni sér í hag.
„Hann er hæfileikaríkur sérvitringur. Ég er alls ekki að bera hann beint saman við Gazza, en það er eitthvað við hann sem minnir á Gascoigne,“ sagði Shearer við Betfair.
„Hann getur gert ótrúlega hluti á vellinum en hefur líka svolítið sama hugarfar utan hans.“
Shearer kallaði Grealish jafnframt „elskulegan vandræðagemsa“.
„Allt verður fyrirgefið ef hann kemst aftur á völlinn og byrjar að töfra fram frammistöður sem hjálpa Everton.“
Shearer telur hins vegar að landsliðsferli Grealish sé lokið.
„Það eru einfaldlega of margir leikmenn í hans stöðu sem standa sig vel.“
Hann hvatti Grealish að lokum til að einbeita sér að fótboltanum.
„Ferill knattspyrnumanns er stuttur. Það er ekkert að því að skemmta sér á réttum tíma, en fótboltinn verður að vera í fyrsta sæti.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗