J-dagurinn: Búist við margmenni í bænum í kvöld

J-dagurinn svokallaði er haldinn hátíðlegur í dag og búist er við mörg þúsund manns í miðborg Reykjavíkur.

Klukkan 20.59 fellur snjórinn við Den Danske Kro og Tuborg-jólabjórinn byrjar að flæða á krönum bæjarins. Í kjölfarið verður lagt af stað í skrúðgöngu sem endar við American Bar.

J-dagurinn á rætur sínar að rekja til Danmerkur og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem ein af vinsælustu jólahefðum bjórunnenda hér á landi.

Í ár fellur snjórinn tvöfalt því auk hins klassíska Tuborg Julebryg snýr Tuborg Lille Jul aftur eftir frábærar viðtökur í fyrra en framleiðslan hefur verið aukin eftir að allt magn seldist upp fyrir nóvemberlok í fyrra. Tuborg Lille Jul er glútenfrír og léttari jólabjór, þróaður af bruggmeisturum Ölgerðarinnar.

„J-dagurinn er alltaf einn af hápunktum ársins hjá okkur. Við hlökkum til að sjá borgina fyllast af jólastemningu og erum sérstaklega ánægð með að geta boðið fleirum upp á Lille Jul í ár eftir frábærar viðtökur í fyrra,“ segir Helga Kristín Gunnlaugsdóttir, vörumerkjastjóri Tuborg hjá Ölgerðinni.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅