Enn langt í stjörnu Arsenal
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Arsenal, segir að Bukayo Saka verði frá keppni næstu vikurnar og að enn sé of snemmt að segja til um hvenær hann snúi aftur á völlinn.
Saka meiddist í 2:2-jafntefli Arsenal gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu fyrir tveimur vikum.
„Við erum að tala um nokkrar vikur,“ sagði Arteta á blaðamannafundi í dag.
Vil ekki setja of mikla pressu á þá
Hann vonast til að Saka geti hafið æfingar á ný eftir landsleikjahléið og aukið álagið smám saman, eftir því hvernig honum líður.
„Því miður verður hann frá í einhvern tíma,“ bætti Arteta við.
Spurður út í mögulega endurkomu Saka vildi Spánverjinn ekki gefa upp neina dagsetningu.
„Ég vil ekki setja of mikla pressu á þá sem vinna að endurkomu hans. Þeir gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma honum í gott stand en það er enn of snemmt að segja til um hvenær hann verður klár,“ sagði Arteta.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗