Myndir: Mikið fjör á fyrsta kvöldi Airwaves
Airwaves-hátíðin hófst af miklum krafti í gær með tónleikum víða í miðborginni. Daði Freyr tróð upp með Sinfóníunni í Hörpu en á minni stöðum komu ýmsir listamenn fram, erlendir sem innlendir.
Fjölmennustu tónleikarnir voru í Ráðhúsinu og í Kolaportinu og þar voru mörg af stærstu nöfnum kvöldsins. Í Kolaportinu hóf Virgin Orchestra leikinn en þar á eftir var komið að Mammút. Sveitin hefur ekki komið fram í nokkurn tíma og fyrir vikið var mikill áhugi á tónleikum hennar. Löng röð myndaðist við Kolaportið en allir komust þó inn að lokum. Gestir voru ekki sviknir af frammistöðunni, Mammút var í fantaformi og virðist til alls líkleg.
Þar á eftir stigu sexmenningarnir í Adult DVD á svið og tókst þeim að hreyfa ágætlega við gestum með þéttri indie-raf/rokktónlist sinni.
Í Ráðhúsinu var danska sveitin Farveblind með tónlist ekki ósvipaða Adult DVD, bassadrifna rokk- og raftónlist. Í kjölfarið steig Yaelokre á svið og vakti lukku viðstaddra.
Talsverð spenna var fyrir tónleikum breska tvíeykisins Worldpeace DMT í Iðnó. Sveitin hefur vakið nokkra athygli og fengið góða dóma en tónleikarnir bættu ekki miklu við, þeir voru eiginlega þvert á móti talsvert síðri en útgefið efni.
Á eftir þeim var hins vegar komið að áströlsku rokksveitinni The Gnomes. Tónninn var gefinn strax í fyrsta lagi og í hönd fór þétt sett af rokki sem lýsa má sem blöndu af bítlatónlist, bílskúrsrokki og kraftpoppi. Útlit fjórmenninganna var eins og klippt út úr blöndu persóna úr Almost Famous og Spinal Tap og Haukur Holm hefði sómt sér vel í salnum. Frábært tónleikaband.
Katrína Mogensen söngkona Mammút tjáði tónleikagestum að hún væri afar ánægð með að stíga aftur á svið með hljómsveitinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




















