Allt á útópnu í Austurbæjarbíó

Feðginin Hörður Bragason og Steinunn Eldflaug Harðardóttir léku við hvern sinn fingur. Ljósmynd/Sigga Ella

Íslenski hljóðgervillinn FIRST LOVE kom í verslanir 30. október, eftir áralanga þróunarvinnu, og var því fagnað í Austurbæjarbíói sama kvöld. Fyrri hluta kvöldsins var vinum og velunnurum LOVE Synthesizers boðið í gleðskap þar sem skálað var fyrir útgáfu FIRST LOVE og hljóðfærið var kynnt.

Einar Hugi orgelleikari opnaði kvöldið og í kjölfarið sýndi tónlistarfólkið Ronja, Örvar Smárason, DJ flugvél og geimskip, Synthea Starlight og Apparat Organ Quartet hvers hljóðgervillinn er megnugur. Að því loknu voru dansskórnir reimaðir á og hlaðið í allsherjar partý þar sem Inspector Spacetime, Young Nazareth, Knackered og Zardonic komu fram. Zardonic, sem spilaði í fyrsta sinn á Íslandi, er jafnframt einn af aðalhljóðhönnuðum FIRST LOVE.

Eins og sjá má var mikið stuð í Austurbæjarbíó. 

Feðgarnir Árni Rúnar Hlöðversson og Fróði Árnason voru ánægðir með kvöldið. Ljósmynd/Sigga Ella

Upptökustjórarnir Magnús Öder og Kristinn Þór Óskarsson kynntu sér nýjasta synthann. Ljósmynd/Sigga Ella

Tónlistarkonan Ronja dáleiddi gesti með FIRST LOVE synthanum.

Tónlistarkonan Ronja dáleiddi gesti með FIRST LOVE synthanum. Ljósmynd/Sigga Ella

Úlfur Eldjárn lék listir sínar með Apparat Organ Quartet.

Úlfur Eldjárn lék listir sínar með Apparat Organ Quartet. Ljósmynd/Sigga Ella

DJ flugvél og geimskip lék listir sínar á FIRST LOVE.

DJ flugvél og geimskip lék listir sínar á FIRST LOVE. Ljósmynd/Sigga Ella

Apparat Organ Quartet spiluðu á fjóra FIRST LOVE samtímis við mikinn fögnuð. Ljósmynd/Sigga Ella

Örvar Smárason lék lag af væntanlegri plötu sinni þar sem FIRST LOVE var í stórri rullu. Ljósmynd/Sigga Ella

Alda Magnúsdóttir og Monika Abendroth, hörpuleikari, voru í banastuði.

Alda Magnúsdóttir og Monika Abendroth, hörpuleikari, voru í banastuði. Ljósmynd/Sigga Ella

Orgelleikarinn Einar Hugi setti tóninn fyrir kvöldið þegar gestir mættur í hús. Ljósmynd/Sigga Ella

Vinny Vamos, Geir Helgi og Marta Guðrún Jóhannesdóttir skemmtu sér konunglega. Ljósmynd/Sigga Ella

Það var mikið stuð.

Það var mikið stuð. Ljósmynd/Sigga Ella

Kári Markússon Guðnýjarson og Anna Valgerður og Kolbeinn Sindri Kárabörn

Kári Markússon Guðnýjarson og Anna Valgerður og Kolbeinn Sindri Kárabörn Ljósmynd/Sigga Ella

Hans Orri Kristjánsson og Sigurlaug Gísladóttir réðu sér vart fyrir kæti. Ljósmynd/Sigga Ella

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir var í miklu stuði.

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir var í miklu stuði. Ljósmynd/Sigga Ella

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅