Ljósmæður þurfa ekki lengur nafn læknis
Breytingunni er ætlað að auka öryggi í meðgönguvernd og tryggja betri eftirfylgni rannsókna Ljósmynd/Colourbox
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sem sinna meðgönguvernd geta frá og með deginum í dag pantað rannsóknir í eigin nafni og með eigin starfsleyfisnúmeri. Hingað til hafa rannsóknarbeiðnir verið skráðar í nafni lækna vegna takmarkana í rafrænum kerfum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Ljósmæður hafa um árabil pantað rannsóknir og fylgt þeim eftir í meðgönguvernd. Niðurstöðurnar hafa hins vegar borist þeim læknum sem beiðnirnar voru skráðar á, í stað ljósmæðranna sem önnuðust eftirfylgnina.
Vöruðu við öryggisáhættu
Mbl.is fjallaði um þennan vanda í september þegar formaður Ljósmæðrafélags Íslands benti á að úrelt tölvukerfi yllu tvíverknaði og gætu skapað öryggisáhættu. Ljósmæður bæru þegar ábyrgð á verkefnunum en kerfin endurspegluðu ekki þá ábyrgð.
Áður hafði komið fram í umfjöllun mbl.is að hjúkrunarfræðingar þyrftu í mörgum tilvikum að nota nafn læknis við verkefni sem þeir sinntu sjálfir, meðal annars vegna takmarkana í tölvukerfum.
Með breytingunni verður rannsóknarbeiðnin skráð á þann heilbrigðisstarfsmann sem pantar rannsóknina og ber ábyrgð á eftirfylgni hennar. Að sögn ráðuneytisins á þetta að stytta boðleiðir, einfalda verklag og auka öryggi barnshafandi kvenna.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sagði í september að unnið væri að því að hjúkrunarfræðingar og ljósmæður gætu notað eigin starfsleyfisnúmer í rafrænum kerfum. Sú breyting hefur nú tekið gildi hvað varðar rannsóknir í meðgönguvernd.
Áfram samráð við lækna
Breytingin byggir á tillögum starfshóps heilbrigðisráðuneytisins frá nóvember 2024 um betri nýtingu á fagþekkingu ljósmæðra.
Hún tekur til rannsókna sem ljósmæður og hjúkrunarfræðingar panta og fylgja eftir samkvæmt gildandi faglegum leiðbeiningum um meðgönguvernd. Áfram verður haft samráð við lækna um túlkun niðurstaðna og meðferð þegar þörf krefur.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, tók í samtali við Morgunblaðið í september undir að ljósmæður og hjúkrunarfræðingar ættu að geta notað eigin starfsleyfisnúmer við verkefni sem þau hefðu heimild og hæfni til að sinna. Hún lagði jafnframt áherslu á samráð milli heilbrigðisstétta.
Breytingin felur hvorki í sér fjölgun rannsókna í hefðbundinni meðgönguvernd né breytta greiðsluábyrgð. Heilbrigðisstofnanir bera áfram kostnað af rannsóknum sem pantaðar eru á þeirra vegum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗