Óeining í herbúðum Napoli - Hraunað yfir De Bruyne

Mikil spenna er sögð ríkja innan leikmannahóps Napoli eftir 4-1 tap gegn Porto í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið.

Í leiknum lenti Kevin De Bruyne í hörðum orðaskiptum við liðsfélaga sinn Lorenzo Lucca.

Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum öskraði Lucca þrisvar sinnum á Belgann að fokka sér og spurði: „Af hverju ert þú að tala?“

Leikmennirnir stóðu augliti til auglitis áður en þeir gengu hvor í sína áttina.

La Gazzetta dello Sport greinir frá vaxandi ósætti innan leikmannahópsins, meðal annars milli ítalskra og erlendra leikmanna.

Napoli situr í áttunda sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar undir stjórn Massimiliano Allegri og hefur tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í Meistaradeildinni.

Matteo Politano gagnrýndi liðsfélaga sína eftir tapið. „Það væri ágætt ef fleiri leikmenn kæmu og útskýrðu stöðuna, ekki bara við Ítalirnir.“

Scott McTominay var einnig ósáttur. „Auðvitað er ég reiður. Við töpuðum 4-1 í Meistaradeildinni. Það er ekkert til að brosa yfir.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅