Faðirinn laus úr haldi

Innlent | mbl | 6.11.2026 | 14:33

Frá héraðsdómi þegar annar feðganna var úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Frá héraðsdómi þegar annar feðganna var úrskurðaður í gæsluvarðhald. mbl.is/Anton Brink

Faðirinn sem handtekinn var í kjölfar hnífsstungumáls sem leiddi til andláts í Efra Breiðholti í síðustu viku hefur verið látinn laus úr haldi. 

Þetta staðfestir Guðmundur St. Ragnarsson, verjandi mannsins við mbl.is. 

Hann hafði áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til níunda nóvember. 

Málið snýr að átökum utanhúss á milli feðganna og tveggja annarra manna. Upphaf átakanna er sögð snúa að meintri fjárkúgun á hendur syninum af hálfu mannsins sem lést í átökunum. Annar maður sem var með honum í för særðist einnig í átökunum og var fluttur með stungusár á sjúkrahús. Lögregla hefur sagt líðan mannsins stöðuga. 

Faðirinn er sagður með áverka á fingri eftir átökin og sonurinn er einnig með áverka eftir átökin. 

Sonurinn er áfram í gæsluvarðhaldi. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅