Jón Trausti svarar Hannesi: „Hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Föstudaginn 6. nóvember 2026 14:42

Jón Trausti Reynisson og Hannes Hólmsteinn. Samsett mynd DV.

Jón Trausti Reynisson, annar höfunda nýrrar bókar um Davíð Oddsson, vísar alfarið á bug fullyrðingum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að bókin sé að mestu leyti skrifuð af gervigreind.

Jón Trausti bregst við frétt Vísis á Facebook-síðu sinni, en þar var greint frá athugasemd sem Hannes skrifaði undir færslu Jóns Viðars Jónssonar leikhúsgagnrýnanda.

„Ég las bókina frá upphafi til enda, en ég sé ekki betur en hún sé að mestu leyti samin af spjallmenni, ai bot. Hún er líklega ein fyrsta bókin á íslensku, sem er gerð að mestu leyti af gervigreind. Það kemur ekkert nýtt fram í henni.“

Bókin hefur vakið talsverða athygli og birtist ritdómur um hana á vef DV í gær þar sem bókin var lofuð. „Höfundarnir Jón Trausti Reynisson og Reynir Traustason hafa augljóslega unnið verkið af kostgæfni og eiga heiður skilinn fyrir að hafa náð utan um þetta mikla efni á skömmum tíma,“ sagði Ólafur Arnarson meðal annars í umsögn sinni.

Jón Trausti bendir á að bókin, Davíðstíminn, byggist á viðtölum við tugi aðila og fjölmörgum skráðum heimildum.

„Í frétt Vísis er mér ekki gefið tækifæri til að svara ásökuninni. Það bendir til þess að hún sé talin léttvæg og ótrúverðug. Kannski í ljósi þess augljósa að spjallmenni taka ekki viðtöl. Svo og að þessi aðferð, að klína sök á mann og fá hann til beina athyglinni að því að hreinsa sig, er þekkt úr sögunni, eins og kemur fyrir í bókinni. Annars er áhugaverð, nýstárleg áróðursaðferð að gera manni upp gervigreind,” segir Jón Trausti og lýkur skrifum sínum með þessum orðum:

„Ekki eitt orð í bókinni er skrifað af gervigreind. Hún er hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅