Opna nýja búð með snyrtivöruverslun
Ný Nettó-verslun verður opnuð á Aðaltorgi í Reykjanesbæ á morgun 7. nóvember. Verslunin er 1.500 fermetrar að stærð, verður opin allan sólarhringinn og státar meðal annars af fyrstu sérstöku snyrtivörudeild Nettó þar sem finna má fjölda alþjóðlegra snyrtivörumerkja.
Nýja verslunin kemur í stað Nettó á Iðavöllum sem lokaði í vikunni. Mikill metnaður hefur verið lagður í hönnun verslunarinnar og ekki síst snyrtivörudeildarinnar sem er 130 fermetrar að stærð.
„Nettó á langa sögu á Reykjanesi og því erum við einstaklega stolt af því að opna nýja og glæsilega verslun á Aðaltorgi og bjóða íbúum Reykjanesbæjar upp á enn betri þjónustu, allan sólarhringinn,“ segir Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri Nettó, í fréttatilkynningu.
Alþjóðleg snyrtivörumerki og kóreskar snyrtivörur
Snyrtivörudeildin er sú fyrsta sinnar tegundar hjá Nettó en stefnt er að því að opna sambærilegar deildir í fleiri verslunum keðjunnar á næstu mánuðum.
Þar verður hægt að finna fjölbreytt úrval snyrtivara, meðal annars frá vinsælum kóreskum snyrtivörumerkjum á borð við TIRTIR, Anua, Medicube, Biodance og Beauty of Joseon. Sum vörumerkjanna hafa ekki verið fáanleg hér á landi áður.
Auk húðvara verður boðið upp á förðunarvörur, hárvörur sem fagaðilar nota, ilmvötn og ýmis snyrtitæki. Áhersla verður lögð á að bjóða vandaðar vörur á hagstæðu verði.
„Við lögðum mikinn metnað í að gera hana sem glæsilegasta og bjóða upp á spennandi alþjóðleg vörumerki. Snyrtivörurnar verða á verði sem mun vera áskorun fyrir samkeppnina á þessum markaði,“ segir Vífill.
Opnunarhátíð með glaðningum og tilboðum
Það verður mikið um dýrðir þegar verslunin opnar á laugardaginn. Gestir geta gert sér glaðan dag og smakkað ýmiss konar góðgæti, meðal annars frá Kjötborðinu, Freyju og Helvítis sultunum.
Glæsileg opnunartilboð verða í boði alla helgina og viðskiptavinir geta freistað gæfunnar með því að snúa lukkuhjóli og unnið til verðlauna.
Þá munu fyrstu 100 viðskiptavinirnir sem versla í nýju snyrtivörudeildinni fá veglegan glaðning. Einnig verður hugsað um yngstu kynslóðina en boðið verður upp á kandíflos og blöðrur á milli klukkan 12 og 16.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
