Allt á útópnu í Austurbæjarbíó
Feðginin Hörður Bragason og Steinunn Eldflaug Harðardóttir léku við hvern sinn fingur. Ljósmynd/Sigga Ella
Íslenski hljóðgervillinn FIRST LOVE kom í verslanir 30. október, eftir áralanga þróunarvinnu, og var því fagnað í Austurbæjarbíói sama kvöld. Fyrri hluta kvöldsins var vinum og velunnurum LOVE Synthesizers boðið í gleðskap þar sem skálað var fyrir útgáfu FIRST LOVE og hljóðfærið var kynnt.
Einar Hugi orgelleikari opnaði kvöldið og í kjölfarið sýndi tónlistarfólkið Ronja, Örvar Smárason, DJ flugvél og geimskip, Synthea Starlight og Apparat Organ Quartet hvers hljóðgervillinn er megnugur. Að því loknu voru dansskórnir reimaðir á og hlaðið í allsherjar partý þar sem Inspector Spacetime, Young Nazareth, Knackered og Zardonic komu fram. Zardonic, sem spilaði í fyrsta sinn á Íslandi, er jafnframt einn af aðalhljóðhönnuðum FIRST LOVE.
Eins og sjá má var mikið stuð í Austurbæjarbíó.
Upptökustjórarnir Magnús Öder og Kristinn Þór Óskarsson kynntu sér nýjasta synthann. Ljósmynd/Sigga Ella
Örvar Smárason lék lag af væntanlegri plötu sinni þar sem FIRST LOVE var í stórri rullu. Ljósmynd/Sigga Ella
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗













