Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir 191 morð

Hinn sjálfskipaði prestur var handtekinn árið 2023 eftir að meira en 400 lík fundust í grunnum gröfum í Shakahola-skógi. AFP/Luis Tato

Dómstóll í Kenía hefur dæmt leiðtoga dómsdagssafnaðar, Paul Mackenzie, í 200 ára fangelsi fyrir að myrða 190 börn og einn fullorðinn.

Mackenzie var, ásamt 27 öðrum, fundinn sekur um morðin fyrir að hafa skipað meðlimum safnaðarins að svelta börn sín til bana svo þau gætu „hitt Jesú“. BBC greinir frá.

Dómarinn Diana Mochache sagði að Mackenzie bæri „meginrefsiábyrgðina“ á því að hafa skipað fylgjendum sínum að fasta til dauða, í einu mannskæðasta dæmi um trúarlegar öfgar í sögu Kenía.

„Refsingin er viðeigandi og réttlát og sendir ótvíræð skilaboð um að slík ódæði verðskuldi þyngstu refsingar sem lög leyfa,“ bætti dómarinn við.

Fundu 400 lík

Hinn sjálfskipaði prestur var handtekinn árið 2023 eftir að meira en 400 lík fundust í grunnum gröfum í Shakahola-skógi nálægt strönd Kenía. Umfangsmikil rannsókn málanna vakti óhug í Kenía og alþjóðlega athygli.

Áður en dómur var kveðinn upp höfðu saksóknarar við dómstólinn í Mombasa krafist dauðarefsingar yfir Mackenzie vegna alvarleika glæpanna, en dauðarefsingu hefur ekki verið fullnægt í Kenía síðan 1987.

Saksóknararnir vísuðu einnig til þess sem þeir lýstu sem iðrunarleysi Mackenzie vegna glæpanna. Þeir kröfðust lífstíðarfangelsis yfir meðákærðu hans.

Létust af köfnun, kyrkingu eða höfuðáverkum

Áður en réttarhöldin hófust sagði Francis Wanje, sem missti átta ættingja í Shakahola-skógi, þar á meðal tvö barnabörn, í þættinum Newsday á BBC að hann „vonaðist eftir... dómi sem samsvaraði verkum hans [Mackenzie] í skóginum“.

Mackenzie og meðákærðu hafa formlega beðið dómstólinn um miskunn og vægð.

Áður en þau voru sakfelld höfðu þau öll neitað sök og ítrekað haldið því fram að enginn hefði verið neyddur til að deyja.

Niðurstöður krufninga sýndu að flest fórnarlömbin létust úr hungri, en önnur létust af köfnun, kyrkingu eða höfuðáverkum.

Ekki var hægt að ákvarða dánarorsök sumra þar sem lík þeirra voru rotnuð, en aðrir létust skömmu eftir að þeim var bjargað þar sem þeir voru svo illa vannærðir.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅