Sér sárlega eftir að hafa hafnað skrýtnu hlutverki: „Ég hugsaði of mikið um þetta“

Bandaríski leikarinn Matt Damon er í forsíðuviðtali GQ Men of the Year sem kom út í gær.

Í viðtalinu talar Damon um hlutverkið sem hann sér eftir að hafa ekki tekið að sér á móti Ted ógeðslegasta bangsa Hollywood. Segir Damon að hann hefði „talað sig frá því“ þegar kom að því að leika John Bennett á móti Ted, leiknum af Seth MacFarlane, hlutverk sem að lokum fór til Mark Wahlberg.

Damon segir að hann „vilji ekki lifa með eftirsjá“ en geti samt ekki alveg skilið þá staðreynd að hann hafi hafnað vinsælu myndinni frá 2012 sem leiddi til þáttaraðar.

„Ég hef aldrei áður hlegið svona mikið við að lesa handrit,“ sagði Damon, 56 ára, og rifjaði upp hvernig hann tók handritið jafnvel með sér í kvöldmat og las hluta af því upphátt fyrir vini sína.

„Og svo varð ég bara of klár. Ég veit ekki hvað ég var að hugsa,“ bætti hann við. „Ég hugsaði bara: „Jæja, kannski er bangsinn í raun besti hlutinn. Svo ég hugsaði þetta of mikið og talaði mig ofan af því að taka þetta að mér,“ viðurkenndi Damon.

Damon útskýrði að hluti af eftirsjá sinni stafaði af því að myndin var tekin upp í heimabæ hans, Boston, sem hefði gefið honum tækifæri til að eyða meiri tíma með föður sínum, sem lést árið 2017, 74 ára að aldri .

„Ég lít til baka og hugsa: Ég hefði getað verið sex mánuði heima,'“ sagði Damon.

Damon sagði samt sem áður að hann teldi að „rétti leikarinn hefði fengið hlutverkið“ og bætti við að „Mark Wahlberg væri frábær og myndin væri frábær og ég hefði ekki gert hana neitt betri.“

Mark Wahlberg og Ted.

Í viðtali árið 2015 viðurkenndi Wahlberg að hann hefði ekki strax verið sannfærður um að taka að sér hlutverkið í Ted.

„Ég var tregur til að lesa handritið því það fjallar um bangsa sem lifnar við. Hvernig selur maður það?“ sagði hann við Men's Fitness á þeim tíma. „Svo ég reyndi að selja konunni minni hugmyndina til að sjá hvort henni líkaði hún.“

Wahlberg rifjar upp að hafa sagt konu sinni, Rhea Durham, frá „talandi bangsa“ á leiðinni á Óskarsverðlaunahátíðina, og hún svaraði: „Þú ert algjör fáviti.“

Ted þénaði yfir 549 milljónir dala um allan heim og árið 2015 kom önnur mynd út, Ted 2, og síðar sjónvarpsþáttaröð á Peacock, sem gerast á á undan söguþræði myndanna. Teiknimyndaþáttaröð verður síðan frumsýnd síðar á þessu ári á Peacock.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅