Ætlaði að gera vel við sig daginn fyrir afmælið – Allt fór úr böndunum eftir að óvæntur grunur vaknaði
Karlmaður sem ætlaði að gera vel við sig í tilefni afmælis síns og pantaði vændiskonu á gistiheimili í Reykjavík hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vændiskaup og líkamsárás.
Afmælisfögnuðurinn fór hins vegar á annan veg en maðurinn hafði ætlað sér og lauk með harkalegri líkamsárás þar sem maðurinn sló konuna ítrekað í andlitið þar til hún missti meðvitund.
Landsréttur kvað upp dóm í málinu í gær og þyngdi þar með refsingu mannsins, sem hafði áður hlotið 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Atvikið átti sér stað sunnudaginn 7. maí 2023 á gistiheimili í austurhluta Reykjavíkur.
Vildi gera vel við sig fyrir afmælið
Við skýrslutöku hjá lögreglu sagðist maðurinn hafa ákveðið að gera vel við sig þar sem hann ætti afmæli daginn eftir. Hann hefði leitað að „fylgdarkonu“ á netinu, fundið konu sem honum leist vel á og mælt sér mót við hana á gistiheimili.
Maðurinn greiddi konunni 30 þúsund krónur fyrir þjónustuna og hófust kynferðisleg samskipti þeirra í herberginu.
Samkvæmt framburði mannsins fór hann hins vegar að gruna að konan væri í raun karlmaður. Hann sagðist hafa spurt hana út í það og að hún hefði brugðist illa við spurningunni.
Maðurinn kvaðst þá hafa ákveðið að hætta við frekari kynferðisleg samskipti og óskað eftir því að fá peningana sína endurgreidda, þó ekki alla fjárhæðina þar sem konan hefði þegar veitt honum munnmök.
Í kjölfarið hafi komið til harðra orðaskipta.
Sagðist hafa óttast um líf sitt
Maðurinn hélt því fram að konan hefði farið að eldhúskrók herbergisins, opnað skúffu og sótt málmhlut sem hann taldi vera hníf.
Hún hefði síðan komið ógnandi að honum og slegið hann í andlitið. Maðurinn sagðist hafa óttast um líf sitt og brugðist við með því að kýla konuna þrisvar eða fjórum sinnum í andlitið.
Hann viðurkenndi að konan hefði misst meðvitund eftir höggin en hélt því fram að hann hefði einungis verið að verja sig. Að því loknu hefði hann yfirgefið herbergið.
Lögreglu barst síðar sama dag tilkynning um konu sem væri lítið klædd og í miklu uppnámi fyrir utan gistiheimilið.
Vitni lýsti því að konan hefði hlaupið fram og til baka um götuna og óskað eftir aðstoð. Þegar lögregla kom á vettvang var hún með sýnilega áverka í andliti og rifna úlpu.
Konan var flutt á bráðamóttöku Landspítalans þar sem í ljós kom að hún hafði meðal annars hlotið opið sár við hægra auga, mar í andliti og áverka á vörum, í munnholi og á höfði.
Konan fannst ekki fyrir réttarhöldin
Við rannsókn málsins gaf konan aðra lýsingu á atburðarásinni en maðurinn. Hún sagði hann hafa orðið árásargjarnan vegna ágreinings um notkun smokks og síðan ráðist á sig.
Ekki tókst hins vegar að hafa uppi á konunni þegar málið kom fyrir dómstóla. Hún er erlendur ríkisborgari og talin stödd erlendis, en ekki er vitað hvar.
Af þeim sökum var ekki unnt að leggja lögregluskýrslur hennar til grundvallar við úrlausn málsins, þar sem verjanda mannsins hafði ekki gefist kostur á að spyrja hana um framburð sinn.
Maðurinn játaði vændiskaupin en krafðist sýknu af líkamsárásinni á grundvelli neyðarvarnar.
Hafnaði skýringum mannsins
Landsréttur taldi sannað að maðurinn hefði slegið konuna ítrekuðum hnefahöggum og valdið henni þeim áverkum sem lýst var í ákæru.
Dómurinn taldi hins vegar ekki unnt að leggja til grundvallar að konan hefði haldið á hnífi þegar til átakanna kom. Frásögn mannsins af málmhlutnum hefði ekki verið nægilega skýr til þess.
Þá taldi rétturinn að manninum hefði gefist ráðrúm til að yfirgefa herbergið án þess að beita konuna svo harkalegu ofbeldi.
Skilyrði neyðarvarnar væru því ekki uppfyllt.
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að atlaga mannsins hefði verið harkaleg. Hann hefði slegið konuna svo þungum höggum í andlitið að hún missti meðvitund og hlaut talsverða áverka.
Honum var þó til málsbóta að hafa ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.
Landsréttur dæmdi manninn í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Honum var jafnframt gert að greiða rúmlega 2,4 milljónir króna í sakarkostnað.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗