Amorim hraunar yfir leikmennina sína eftir gærkvöldið
Ruben Amorim, knattspyrnustjóri AC Milan, var allt annað en sáttur eftir 2-0 tap gegn ungverska liðinu Ferencvaros í Evrópudeildinni í gærkvöldi.
Milan tapaði á heimavelli þrátt fyrir að gestirnir hefðu leikið síðustu 15 mínúturnar manni færri.
Amorim, sem tók við Milan í sumar eftir brottrekstur frá Manchester United, gagnrýndi leikmenn sína harðlega.
„Þegar þú spilar fyrir Milan fylgir því ábyrgð. Þú getur ekki mætt til leiks með þessu hugarfari,“ sagði Portúgalinn.
„Ég get ekkert sagt til að verja liðið. Fyrri hálfleikurinn var skelfilegur. Okkur skorti metnað, rétt hugarfar og einbeitingu.“
Amorim tók þó ábyrgðina á sig.
„Ég ber fulla ábyrgð því þetta er mitt lið. En við megum ekki bjóða stuðningsmönnum okkar upp á svona frammistöðu.“
Milan situr í fimmta sæti ítölsku deildarinnar en er aðeins í 28. sæti Evrópudeildarinnar.
„Við verðum að bæta okkur, annars er þetta búið,“ sagði Amorim að lokum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗