Mikil viðurkenning fyrir Andra Lucas

Andri Lucas Guðjohnsen.

Andri Lucas Guðjohnsen. Ljósmynd/Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið tilnefndur sem leikmaður októbermánaðar í ensku B-deildinni í fótbolta.

Andri átti frábæran mánuð með Blackburn og skoraði fimm mörk í jafnmörgum leikjum í október. Alls hefur hann skorað níu mörk og lagt upp eitt til viðbótar í 13 leikjum í deildinni á tímabilinu.

Fleiri en Andri koma til greina en August Priske, leikmaður Birmingham, Ben Wilmot hjá Stoke, Jack Moylan hjá Cardiff, James Bree hjá Southampton og Will Lankshear hjá Middlesbrough eru einnig tilnefndir. Hægt er að kjósa hér.

🗳️ @AndriLucasG has been nominated for the @PFA @SC_Leasing Championship Fans’ Player of the Month Award for October! Click the link in the replies to find how to vote for the Iceman 👇 #Rovers 🔵⚪️ https://t.co/Cv0dVfhxxo

— Blackburn Rovers (@Rovers) November 6, 2026

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅