„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“ Og setjist svo niður með hjólabúum á Sævarhöfða og leysið málið!“
segir Kolbrún Baldursdóttir þingmaður Flokk fólksins um málefni íbúa hjólhýsabyggðarinnar við Sævarhöfða.
„Ég er eiginlega orðlaus yfir þeirri harðneskju sem þetta fólk er beitt. Nú hefur bæði verið lokað fyrir rafmagn og vatn og veturinn genginn í garð. Samkvæmt nýjustu fréttum eru enn 12 manns á svæðinu, þar á meðal fólk sem glímir við alvarleg veikindi. Fólk situr í kuldanum og veit ekki hvert það á að fara.“
Í frétt Morgunblaðsins í gær kom fram að Reykjavíkurborg tók rafmagnið af svæðinu og skrúfaði fyrir vatnið núna um mánaðamótin eftir að hafa rift samningi í sumar um lóð í Gufunesi fyrir hjólhýsabyggð. Rætt var við Bergþóru Pálsdóttur, talskonu hjólabúa, sem sagði 12 manns enn á svæðinu: „Það eru allir að frjósa úr kulda,“ sagði hún.
Rifjar Kolbrún upp að íbúarnir hafi búið við óvissu árum saman. Fyrst hafi þeim verið gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal, síðan var því komið tímabundið fyrir á Sævarhöfða og átti sú lausn að vara í nokkra mánuði en síðan eru liðin rúm þrjú ár. Samningi um framtíðaraðstöðu í Gufunesi var síðan rift án þess að önnur lóð væri boðin í staðinn.
„Ég skil að borgaryfirvöld þurfi að huga að öryggi, skipulagi og kostnaði. En hvar er mennskan? Hvernig getur það verið lausn að taka rafmagnið af fólki í nóvember, þegar það hefur ekki í önnur hús að venda?“
Hefur Kolbrún ásamt fleiri þingmönnum í Flokki fólksins lagt fram þingsályktunartillögu um að skapa lagagrundvöll fyrir varanlegri búsetu í hjólhýsum, húsbílum og öðrum samþykktum færanlegum búsetueiningum. „Það er mikilvægt framtíðarmál, en það þarf ekki að bíða eftir þeirri tillögu til að finna þessum hópi viðunandi aðstöðu. Sveitarfélögin fara með skipulagsvaldið og Reykjavíkurborg getur því þegar hafið vinnu við að finna og skipuleggja svæði fyrir fólkið, innan gildandi laga.
Reykjavíkurborg verður að sýna þessu fólki mannúð. Setjið rafmagnið og vatnið aftur á og það strax!! og finnið svo varanlegri lausn í samtali við íbúana. Heimili er heimili þótt það standi á hjólum.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗