Hefur engan áhuga á að taka við United

Didier Deschamps.

Didier Deschamps. AFP/Mauro Pimentel

Frakkinn Didier Deschamps hefur látið enska knattspyrnufélagið vita að hann hafi engan áhuga á að taka við karlaliði félagsins. 

Daily Mirror segir frá en Deschamps var orðaður við starfið á dögunum eftir slæmt gengi liðsins undir stjórn Michael Carrick. 

Deschamps er 58 ára gamall og hætti í sumar sem þjálfari franska landsliðsins eftir 14 ára starf. Hann gerði Frakka að heimsmeisturum árið 2018. 

Deschamps var þá einnig frábær leikmaður og lék yfir 100 landsleiki með Frökkum. Hann var fyrirliði liðsins þegar Frakkar unnu fyrri heimsmeistaratitil sinn árið 1998 og því átt stóran þátt í báðum heimsmeistaratitlum Frakka.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅