Aðgerðir í þágu dýraverndar megi ekki auka þjáningu

Matvælastofnun leggur áherslu á mikilvægi þess að tilkynnt sé um grun um slæman aðbúnað eða illa meðferð dýra. Stofnunin varar þó við því að þeir sem telja brotið á velferð dýra grípi til aðgerða sem geti valdið dýrunum frekari þjáningum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnunar vegna myndbands sem Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem hefur játað innbrot í svínabú Stjörnugríss á Brimnesi á Kjalarnesi, birti á Instagram. Á myndbandinu má meðal annars sjá svín með legusár og dauða grísi í búinu.

„Matvælastofnun telur ávallt mikilvægt að fá ábendingar um ef aðbúnaður eða umhirða dýra er talinn vera með þeim hætti að það brjóti á velferð þeirra,“ segir í tilkynningu.

Þar kemur jafnframt fram að ábendingar um brot á velferð dýra séu ávallt teknar mjög alvarlega. Slíkum ábendingum sé strax fylgt eftir með rannsókn og kröfum um úrbætur ef brot reynast hafa átt sér stað.

Mega ekki auka þjáningar dýranna

Matvælastofnun leggur sérstaka áherslu á að aðgerðir þeirra sem vilja vekja athygli á mögulegum brotum gegn dýrum megi ekki verða til þess að auka þjáningar þeirra.

„Það er hins vegar afar brýnt að taka fram að aðferðir og aðgerðir þeirra sem telja brotið á dýrum mega aldrei valda eða auka á þjáningar dýra,“ segir í tilkynningu. 

Eins og áður hefur verið greint frá var brotist inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi í maí síðastliðnum. Þar voru stíur opnaðar og svínum hleypt lausum. Tíu smágrísir drápust og aflífa þurfti einn til viðbótar vegna áverka. Fleiri dýr slösuðust í tengslum við atvikið.

Reglubundið eftirlit með svínabúum

Matvælastofnun segir jafnframt að reglubundið eftirlit sé haft með öllu dýrahaldi á landinu, þar á meðal svínabúum.

Stofnunin fylgi eftir þeim frávikum sem kunna að koma í ljós varðandi aðbúnað eða umhirðu dýra og geri kröfur um úrbætur þegar tilefni sé til.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅