Samstarf Laufeyjar og Collab tilnefnt til verðlauna
Laufey tók þátt í þróun drykkjar og mótun markaðsherferðar sem nú er tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna. Ljósmynd/Aðsend
Markaðsherferð vegna samstarfs tónlistarkonunnar Laufeyjar og drykkjarvörumerkisins Collab er tilnefnd til Alþjóðlegu nýsköpunarverðlaunanna í drykkjarvöruiðnaði 2026 (e. World Beverage Innovation Awards) í flokki bestu markaðsherferðar. Úrslitin verða tilkynnt 10. nóvember á BrauBeviale-sýningunni í Nürnberg í Þýskalandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ölgerðinni.
Fjórar herferðir eru tilnefndar í flokknum. Auk samstarfs Laufeyjar og Collab, sem skráð er á nafn Ölgerðarinnar, eru þar herferðir frá PepsiCo, IDS Borjomi Georgíu og samtökum mjólkurframleiðenda í Québec.
Samstarfið var kynnt í mars síðastliðnum. Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu tók Laufey þátt í þróun drykkjar með jarðarberja- og matchabragði sem framleiddur var í takmörkuðu upplagi. Tónlist og myndheimur hennar voru jafnframt höfð til hliðsjónar við hönnun umbúða og gerð kynningarefnis.
„Skemmtileg viðurkenning“
„Þessi tilnefning er alveg einstaklega skemmtileg viðurkenning fyrir okkur og samstarfið við Laufeyju. Frá upphafi vildum við fara ótroðnar slóðir og skapa alveg nýja upplifun fyrir aðdáendur Laufeyjar og Collab. Laufey tók virkan þátt í sköpuninni og við fengum tækifæri til að tengja hennar einstaka listræna heim við Collab á nýjan og spennandi hátt,“ segir Vaka Njálsdóttir, vörumerkjastjóri Collab, í tilkynningunni.
Vaka Njálsdóttir, vörumerkjastjóri Collab, segir tilnefninguna skemmtilega viðurkenningu fyrir samstarfið við Laufeyju. Ljósmynd/Aðsend
FoodBev Media stendur að Alþjóðlegu nýsköpunarverðlaununum í drykkjarvöruiðnaði 2026, sem veitt eru í 23. sinn. Verðlaunaflokkarnir ná meðal annars til vöruþróunar, umbúðahönnunar, framleiðslutækni og markaðssetningar í drykkjarvöruiðnaði.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/63/71/1637124.jpg)
