Tuchel svarar fyrir það af hverju Cole Palmer kemst ekki í landsliðið
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, hefur útskýrt hvers vegna Cole Palmer, leikmaður Chelsea, var ekki valinn í landsliðshópinn fyrir komandi leiki gegn Króatíu og Spáni.
Palmer, sem er 24 ára, dró sig úr síðasta landsliðsverkefni vegna minniháttar vöðvameiðsla.
Chelsea hefur þó staðfest að leikmaðurinn sé orðinn fullkomlega heill heilsu og því er ákvörðun Tuchel ekki tengd meiðslum.
„Ég geri ráð fyrir að allir séu ólmir í að spila fyrir England og Cole er engin undantekning,“ sagði Tuchel.
„Hann missir hins vegar af of mörgum tækifærum til að sýna hvað í honum býr.“
Þjóðverjinn hrósaði þeim leikmönnum sem mættu í síðustu landsliðsverkefni.
„Þeir byggðu upp eitthvað einstakt saman. Þess vegna fá þeir traustið og halda sínum sætum.“
Tuchel tók þó fram að ekkert persónulegt lægi að baki ákvörðuninni.
Palmer hefur byrjað alla deildarleiki Chelsea síðan Xabi Alonso tók við stjórn liðsins en þarf nú að bíða eftir næsta tækifæri með landsliðinu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗