Birtir myndband af innbrotinu í Stjörnugrís
Maðurinn sem framdi innbrot í svínabú Stjörnugríss á Brimnesi á Kjalarnesi hefur birt myndband sem hann segir sýna slæman aðbúnað svínanna. Á myndbandinu má sjá svín með legusár og dauða grísi í búinu.
Hinn 25 ára gamli Einar Logi Pétursson birti myndbandið á Instagram-reikningi sínum og lýsir þar aðstæðum í búinu.
„Ég veit ekki hvað ég á að gera,“ má heyra Einar Loga segja þegar hann lýsir aðbúnaði dýranna.
„Í kringum mig eru hundruð svína sem eru að þjást í þröngum, þröngum búrum. Þau fá aldrei að fara út, þau fá aldrei að sjá sólina, þau fá aldrei að fara á grasið, það eina sem þau þekkja er þjáning,“ segir Einar Logi.
Innbrotið vakti töluverða athygli og fljótlega vaknaði grunur um að það hefði verið framið í nafni dýravelferðar.
Við innbrotið í Brimnesi og síðar innbrot í Reykjabú í Mosfellsbæ í júní fundust stefnuyfirlýsingar í þágu dýravelferðar. Lögregla rannsakaði hvort sömu aðilar hefðu staðið að baki báðum atvikum.
Fram kom í fréttum mbl.is að maður hefði játað á sig verknaðinn. Sá maður er Einar Logi.
Myndbandið má sjá hér að neðan en rétt er að vara við því að þar má sjá óhugnanlegar myndir.
Miklar skemmdir voru unnar á húsnæði og innréttingum. Fjölda svína var sleppt lausum úr stíum og út undir bert loft, með þeim afleiðingum að tíu smágrísir drápust, aflífa þurfti einn til viðbótar og fleiri dýr slösuðust.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗