Hlýjasta nóvemberbyrjun aldarinnar
Trausti Jónsson veðurfræðingur segir að nóvemberbyrjun þessa árs sé sú hlýjasta aldarinnar.
Þetta ritar hann á bloggsíðu sinni.
Segir hann að líklegt sé að hlýtt verði næstu daga en brýnir fyrir fólki að framhaldið sé enn óljóst og að veturinn sé smám saman að taka við sér.
Veturinn ekki langt undan
Trausti segir að ekki sé langt í að kalt loft berist til Íslands norður undan.
Tölvuspám hafi að undanförnu gengið vel að ráða í veður nokkra daga fram í tímann en meiri óvissa verið í langtímaspám. Þá hafi köldum norðan- eða vestanáttum verið spáð undanfarið án þess að úr þeim hafi orðið.
Jafnframt segir hann veðurfyrirbærið El Niño óvenjuöflugt í ár og ekki sé vitað hvaða áhrif það muni hafa hér á landi. Þykir honum líklegt að óbein áhrif verði af El Niño sem erfitt verður að tengja því.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗