Fyrsti valkostur KA-manna
Srdjan Tufegdzic er fyrsti valkostur sem nýr þjálfari karlaliðs KA í fótbolta.
Þetta staðfesti Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri liðsins, í samtali við fótbolta.net.
KA féll úr Bestu deildinni á nýliðnu tímabili og verður því í 1. deildinni á næsta ári.
Srdjan býr í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni en synir hans tveir eru á mála hjá stórliði Malmö.
„Við höfum tekið fund með tveimur þjálfurum, það er ekkert launungarmál að við höfum verið að ræða við Túfa. Við erum að sjá hvort það gangi upp, hann er með fjölskylduna úti í Svíþjóð. Þetta skýrist væntanlega á næstu dögum,“ sagði Sævar við fótbolta.net.
Hann viðurkenndi síðan að Srdjan væri fyrsti kostur.
„Já, Túfa er það hjá okkur. Við erum aðeins að bíða og sjá hvernig staðan hjá honum verður, gefum honum nokkra daga.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗