Frúin hans Ronaldo fékk sér nýjan bíl - Sýnir gripinn sem kostaði 44 milljónir

Georgina Rodriguez, eiginkona Cristiano Ronaldo, vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum þegar hún sýndi fylgjendum sínum nýjan lúxusbíl.

Kaupin áttu sér stað sama dag og Ronaldo tilkynnti að hann væri hættur að leika með portúgalska landsliðinu.

Georgina, sem er 32 ára, keypti glæsilegan Land Rover fyrir 250 þúsund pund, eða um 44 milljónir íslenskra króna.

Hún birti myndband á Instagram þar sem bíllinn var afhentur við heimili hennar.

„Þegar sendingin kemur heim að dyrum,“ skrifaði Georgina við myndbandið.

Þar mátti sjá hana ganga út úr húsinu, skoða bílinn og setjast undir stýri. Hún sýndi einnig sérmerkta númeraplötu.

Fylgjendur hennar voru afar hrifnir af nýju kaupunum og óskuðu henni til hamingju.

Bílasafn Ronaldo er þegar orðið ansi glæsilegt og er metið á um 100 milljónir punda.

Þar á meðal er Bugatti Centodieci sem er metinn á 12,5 milljónir punda.

Nýi Land Roverinn bætist því í glæsilegan bílaflota hjónanna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅