Skoða 5 milljarða stofnun fyrir hættulega á Hólmsheiði

Áform eru um að reisa öryggisstofnun sem getur vistað allt að sextán einstaklinga sem ekki er hægt að vista í öðrum úrræðum. Samsett mynd/Colorbox/mbl.is/Eggert

Áform eru um að reisa sérstaka miðstöð um öryggisráðstafanir á Hólmsheiði, skammt frá fangelsinu. Áætlaður byggingarkostnaður er um 5,2 milljarðar króna og stefnt er að því að húsnæðið verði tilbúið í byrjun árs 2031 ef af áformunum. 

Málið á rætur sínar að rekja til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins en var tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur vegna þeirra breytinga á aðalskipulagi sem byggingin kallar á. Athugunin byggir á viljayfirlýsingu ríkis og Reykjavíkurborgar frá nóvember og markar upphaf skipulagsferlisins.

Þar verða vistaðir að hámarki 16 einstaklingar sem dæmdir hafa verið eða úrskurðaðir til öryggisgæslu, en þeir eru annaðhvort ósakhæfir eða talið er að refsing muni ekki bera árangur.

Eftir að afplánun lýkur

Í frumathugun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins segir að hluti skjólstæðinga muni hafa lokið afplánun í fangelsi en þurfi að sæta áframhaldandi öryggisgæslu til að tryggja almannaöryggi.

Gert er ráð fyrir reglulegri endurskoðun öryggisráðstafana, en ljóst er að einstaklingar gætu þurft að dvelja þar til langs tíma.

Því til viðbótar er gert ráð fyrir að einstaklingum geti verið gert að sæta vistun þar í stað gæsluvarðhalds eða að fatlaðir einstaklingar geti verið vistaðir þar tímabundið vegna sérstakra aðstæðna.

Þetta kemur fram í gögnum sem lögð hafa verið fyrir Reykjavíkurborg vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi borgarinnar.

Markmiðið er að tryggja öryggi almennings og leggja áherslu á meðferð og endurhæfingu skjólstæðinga.

Fyrsta úrræði sinnar tegundar

Í umsögn segir að hingað til hafi skort heildstæða umgjörð um slíka þjónustu hér á landi. Nýja miðstöðin verður fyrsta úrræði sinnar tegundar og á að þjóna landinu öllu.

Gert er ráð fyrir um 2.400 fermetra byggingu norðaustan við fangelsið á Hólmsheiði, nærri Hafravatnsvegi.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að kynna skipulagslýsingu vegna framkvæmdarinnar og leita umsagna. Breyta þarf aðalskipulagi og vinna deiliskipulag áður en framkvæmdir geta hafist.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅