Dagar Cybertruck virðast taldir

Framtíð Cybertruck, hins umdeilda rafmagnspallbíls Tesla, er í mikilli óvissu eftir að Elon Musk tilkynnti að framleiðslu hans í Texas yrði hætt á næsta ári. Ummæli hans og yfirverkfræðings verkefnisins benda til þess að dagar bílsins kunni að vera taldir.

Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá þessu.

Musk greindi frá því að Tesla hygðist hætta framleiðslu Cybertruck í verksmiðju sinni í Texas á næsta ári til að rýma fyrir aukinni framleiðslu Cybercab, sjálfkeyrandi leigubíls fyrirtækisins.

Hann tók þó ekki skýrt fram hvort framleiðslu Cybertruck yrði hætt alfarið eða hvort hún yrði flutt annað.

Wes Morrill, yfirverkfræðingur Cybertruck-verkefnisins, virtist hins vegar taka af allan vafa um framtíð bílsins þegar hann skrifaði á samfélagsmiðilinn X:

„Cybertruck var einstakur vettvangur fyrir tækniþróun og arfleifð hans mun lifa áfram í Cybercab.“

Musk tók undir með aðdáanda

Tíðindin hafa valdið miklum vonbrigðum meðal dyggustu aðdáenda Tesla. Einn þeirra lýsti Cybertruck sem besta bíl sem fyrirtækið hefði nokkru sinni framleitt og harmaði að framleiðslu hans yrði hætt.

Musk svaraði færslunni með einu orði: „Satt.“

Hann bætti þó við að þeir Cybertruck-bílar sem þegar væru komnir á göturnar myndu verða þar um langa framtíð.

Cybertruck hefur lengi verið eitt helsta gæluverkefni Musks. Hann hefur ítrekað lýst yfir hrifningu sinni á bílnum og kallaði hann meðal annars bestu vöru sem Tesla hefði framleitt.

Sú hrifning hefur þó ekki skilað sér í sölu í samræmi við væntingar.

Sérstakt útlit og dræm sala

Cybertruck vakti heimsathygli þegar hann var fyrst kynntur árið 2019 en það var ekki fyrr en árið 2023 að hann kom loks á markað eftir ítrekaðar tafir.

Sérstakt útlit hans, með hvössum línum og yfirbyggingu úr ryðfríu stáli, vakti athygli margra. Sumir líktu honum við farartæki úr vísindaskáldsögunni Blade Runner en aðrir gerðu óspart grín að útlitinu.

Sala bílsins hefur síðan valdið vonbrigðum og fjölmargar innkallanir hafa sett strik í reikninginn. Árið 2025 þurfti Tesla meðal annars að innkalla rúmlega 46 þúsund Cybertruck-bíla vegna hættu á að hlutar af ytri klæðningu þeirra gætu losnað.

Verðið hefur einnig reynst hindrun. Musk lagði upphaflega áherslu á að framleiða bíl sem almenningur hefði efni á, en dýrasta útgáfan, svokölluð Cyberbeast, kostar nú 102 þúsund Bandaríkjadali, jafnvirði um 12,5 milljóna íslenskra króna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅