Enginn fær að bera treyjunúmer Messis

Lionel Messi er einn allra besti knattspyrnumaður sögunnar.

Lionel Messi er einn allra besti knattspyrnumaður sögunnar. AFP/Luis Robayo

Enginn leikmaður argentínska landsliðsins í fótbolta fær að bera tíuna á bakinu í komandi landsleikjaglugga. 

Lionel Scaloni, þjálfari liðsins, hefur tekið þá ákvörðun að enginn leikmaður fái að bera númerið en Lionel Messi klæddist treyjunni um árabil. Messi lék sinn síðasta landsleik í síðasta mánuði.

Treyjan hefur mikla sérstöðu í sögu argentínska landsliðsins en Diego Maradona bar hana einnig á sínum tíma og er einn dáðasti leikmaður þjóðarinnar frá upphafi.

Argentína mætir Úrúgvæ og Kosta Ríka í tveimur vináttulandsleikjum í landsleikjaglugganum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅