Fékk áfall við komuna til Íslands – Sængin kostaði meira en gistingin
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 6. nóvember 2026 13:00
Thao brá í brún þegar hún fann enga sæng í rúminu.
Ferðamenn frá Víetnam fengu áfall þegar þeir komust að því að sængin á hótelinu þeirra kostaði meira en gistingin sjálf. Þá kom matarkostnaðurinn einnig á óvart.
Víetnamski miðillinn Dantri greinir frá þessu.
Thao Van, víetnömsk kona frá borginni Hanoi, greinir frá óvæntum kostnaði víð Íslandsförina sem hún fór í seint á árinu 2025. Hún þurfti að greiða sérstaklega fyrir sængina, og kostnaðurinn var meiri en fyrir herbergið sem hún gisti í.
Thao leigði herbergi í Reykjavík á fyrir 2 milljónir víetnömsk dong á nóttina, það er í kringum 8 þúsund krónur. En engar sængur voru á rúmunum. Fyrir sæng þurfti hún að borga í kringum 12 þúsund krónur, það er um 50 prósent meira en herbergið sjálft kostaði.
Engin sæng í rúminu
Segist Thao hafa gert sér fyrir fram grein fyrir því að verðlag væri hátt á Íslandi. Þess vegna hafi hún reynt að finna ódýra gistingu til þess að minnka heildarkostnaðinn.
Herbergið sem hún leigði var um 10 fermetrar, með rúmi, einum stól og spegli. Ekki mjög tilkomumikið herbergi. Það kom Thao samt á óvart að það hafi hvorki verið sæng né teppi á rúminu. Ísland sé kalt land og varla hægt að sofa án þess að hafa eitthvað yfir sér á nóttunni. Sendi hún skilaboð á leigusalann og spurði út í þetta.
„Svarið sem ég fékk kom mér í opna skjöldu,“ segir Thao. „Samkvæmt auglýsingunni þurftu gestir, ef þeir vildu nota teppin, að greiða 12.000 íslenskar krónur til viðbótar, sem jafngildir tæpum 3 milljónum víetnamskra donga miðað við gengið á þeim tíma.“
Lexía sem aldrei gleymist
Þó að þetta hafi staðið í auglýsingunni hafi henni ekki einu sinni dottið í hug að athuga það. En þar stóð að gestir gætu komið með eigin sængur eða teppi.
„Ég hef ferðast víða og upplifað hvers kyns gistimöguleika, en þetta er í fyrsta sinn sem ég lendi í því að þurfa að greiða hátt aukagjald bara til að fá að nota teppi í herberginu,“ segir hún.
Það haldi niður kostnaðinum fyrir gististaðinn að þurfa ekki að þvo sængur og teppi.
„Þetta er smáatriði sem fór fram hjá mér þegar ég bókaði á netinu. Þetta er líka lexía sem ég mun aldrei gleyma. Ég gisti í tvær nætur og seinni nóttina rukkuðu þau mig um 30 prósent aukalega fyrir sængina,“ segir Thao.
Heilt yfir segir hún hins vegar að reynslan hafi verið góð af ferðalaginu. Hún hafi prófað að borða hákarl og séð norðurljósin. Hins vegar sé maturinn vissulega dýr á Íslandi.
Nefnir hún að lítil pönnukaka geti kostað rúmlega 2 þúsund krónur og hamborgari svipað.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗