Nokkrir menn sem eru sagðir á blaði hjá United fyrir gluggann í janúar
Manchester United hyggst styrkja leikmannahóp sinn í janúarglugganum en félagið er sagt leita að vinstri bakverði og framherja.
Forráðamenn United viðurkenna að ekki hafi tekist nægilega vel til á félagaskiptamarkaðnum í sumar.
Luke Shaw hefur glímt við meiðsli og Benjamin Sesko verður frá keppni fram í janúar vegna meiðsla á sköflungi.
Rodrigo Muniz, framherji Fulham, er sagður koma til greina sem ódýr skammtímalausn. Brasilíumaðurinn hefur fengið fá tækifæri hjá Fulham á tímabilinu.
Þá gæti United reynt að fá Tyrick Mitchell frá Crystal Palace en samningur hans rennur út næsta sumar.
Rayan Aït-Nouri, leikmaður Manchester City, var boðinn United í sumar en félagið hafnaði þeim möguleika.
United hefur þó takmarkað fjármagn til leikmannakaupa og gæti þurft að selja áður en nýir leikmenn koma inn.
Joshua Zirkzee og Harry Amass eru meðal þeirra sem gætu yfirgefið Old Trafford í janúar.
Þá er búist við að Shaw yfirgefi félagið næsta sumar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗