Rétti tíminn til að flytja til Þýskalands
Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson gekk í þýska félagsins Hannover-Burgdorf síðasta sumar eftir fjögur ár hjá Kolstad í Noregi, þar sem hann var fyrirliði síðustu tvö árin.
Sigvaldi og fjölskylda hafa komið sér vel fyrir í Þýskalandi og eru ánægð með leikskólann þar.
„Fjölskyldunni líður vel og leikskólinn er flottur. Þetta tekur tíma, að flytja til nýs lands með fjölskyldu og börn og svoleiðis. Við erum hægt og rólega að komast inn í þetta og erum spennt fyrir framhaldinu,“ sagði Sigvaldi í samtali við mbl.is.
Vill bæta sig þrátt fyrir að vera ekkert unglamb
Sigvaldi telur að það að spila í sterkustu deild heims geti einnig hjálpað sér í landsliðinu. Hann finnur fyrir því að kröfurnar í Þýskalandi haldi honum á tánum.
„Ég held að það hjálpi klárlega til. Maður þarf að standa sig vel á hverri einustu æfingu og hver einasti leikur skiptir máli. Þetta gerir mig vonandi að betri leikmanni. Ég er ekkert unglamb lengur en vona samt að ég haldi áfram að bæta mig.
Þetta var rétti tíminn til að fara til Þýskalands og fá alvöru leiki, alvöru æfingar og finna fyrir hörkunni á hverri einustu stundu,“ bætti Sigvaldi Björn við.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/65/12/1651239.jpg)