„Við biðjum fjölskylduna innilega afsökunar“
Hugbúnaðarfyrirtækið Abler, sem hefur það að markmiði að einfalda og efla íþrótta- og tómstundastarf, harmar mistök sem leiddu til þess að foreldrar sem misstu dóttur sína fyrir tæpum þremur árum fengu ítrekað boð um námskeið fyrir hana.
„Við höfum nú þegar fjarlægt tengingu dóttur þeirra við foreldrana og tryggt að hún myndist ekki aftur. Við erum að fara yfir hvort fleiri fjölskyldur séu í sömu stöðu. Við biðjum fjölskylduna innilega afsökunar,“ segir í skriflegu svari fyrirtækisins við fyrirspurn mbl.is.
Tilefnið er viðtal mbl.is við Björgu Jóhannsdóttur, móður sem missti eldri dóttur sína, Júlíönu Rut, þegar hún var aðeins nokkurra klukkustunda gömul og fær enn boð og áminningar tengdar dóttur sinni, þar á meðal boð um námskeið hjá Abler.
Sem fyrr segir eru tæplega þrjú ár liðin frá því að Júlíana litla féll frá. Björg og eiginmaður hennar, Orri Bergmann Valtýsson, eiga í dag aðra dóttur sem er rúmlega eins árs og hafa þau, eins og stór hluti íslenskra foreldra, notað Abler til að halda utan um námskeið fyrir hana.
„Við erum alltaf með hana [Júlíönu] inni á Abler þannig að ef við erum að kaupa til dæmis sundnámskeið fyrir hina stelpuna okkar þurfum við alltaf að velja hvort barnið við viljum kaupa fyrir,“ sagði Björg. Þau hefðu ítrekað haft samband við fyrirtækið vegna þessa.
„Á því berum við ábyrgð“
„Okkur þykir þetta mjög leitt. Foreldrar sem hafa misst barn eiga ekki að fá boð um námskeið fyrir það frá okkur, og þeir eiga ekki að þurfa að hafa samband aftur og aftur til að fá það lagað. Við bregðumst alltaf við þegar foreldrar hafa samband vegna svona mála, en í þessu tilfelli dugði það ekki. Á því berum við ábyrgð,“ segir í svarinu.
Kerfi Abler virki þannig að börn eru tengd foreldrum sínum út frá gögnum Þjóðskrár, sem fást daglega í gegnum Advania. Á hverri nóttu les kerfið inn breytingar úr Þjóðskrá, þar á meðal upplýsingar um forsjá barna.
Þegar foreldri skráir sig inn með rafrænum skilríkjum sækir kerfið fjölskyldutengsl í gögn Þjóðskrár, svo að til dæmis nýfædd börn birtist strax.
Þegar foreldri er ekki lengur skráð með forsjá barns fjarlægir kerfið tenginguna sjálfkrafa.
Fara yfir hvort fleiri fjölskyldur séu í sömu stöðu
Í þessu tilfelli fjarlægði starfsfólk tenginguna þegar fjölskyldan hafði samband en kerfið tengdi dóttur þeirra aftur næst þegar foreldri skráði sig inn.
Lagfæring sem fyrirtækið gerði í febrúar náði ekki til alls kerfisins fyrr en í ágúst og tengingin var ekki fjarlægð aftur fyrr en í gær.
„Þetta eru mistök af okkar hálfu,“ segir í svarinu.
„Við höfum nú þegar fjarlægt tengingu dóttur þeirra við foreldrana og tryggt að hún myndist ekki aftur. Við erum að fara yfir hvort fleiri fjölskyldur séu í sömu stöðu. Við biðjum fjölskylduna innilega afsökunar.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/99/1689950.jpg)
