Fiskur og franskar með indversku ívafi

Það er engin tilviljun að þorskurinn er ítrekað valinn af fremstu matreiðslumönnum landsins. Ljósmynd/Aðsend

Þorskurinn er eitt hreinasta og tignarlegasta hráefni sem íslensk matargerð hefur upp á að bjóða. Hann er mótaður af köldum sjó og tærri náttúru og hefur í gegnum aldirnar skipað lykilhlutverk í mataræði þjóðarinnar.

Það er engin tilviljun að þorskurinn er ítrekað valinn af fremstu matreiðslumönnum landsins. Hann er prótínríkur, auðmeltur og ríkur af joði og B12-vítamíni; næring sem styrkir bæði líkama og taugakerfi. Í heimi þar sem gæði skipta meira máli en magn stendur þorskurinn eftir sem eitt tærasta dæmið um það besta sem náttúran hefur upp á að bjóða.

Þorskhnökkunum er velt upp úr tempuradeigi

Hér fær hinn sígildi réttur fiskur og franskar indverskt yfirbragð. Þorskhnökkum er velt upp úr tempuradeigi með tikka masala, garam masala og mangóchutney áður en þeir eru djúpsteiktir. Með fiskinum er borin fram sósa úr súrmjólk og majónesi með gúrku, myntu og límónusafa.

Uppskriftin kemur af vefnum Besti bitinn, þar sem finna má fjölbreyttar hugmyndir að matreiðslu þorskhnakka. Varan „Besti bitinn af þorskinum“ frá Samherja kom í verslanir síðla árs 2025 og fæst í Hagkaup, Krónunni, Bónus og Fjarðarkaupum.

„Besti bitinn af þorskinum“ frá Samherja er í aðalhlutverki í réttinum. Ár er liðið frá því að varan kom fyrst í verslanir hér á landi. Ljósmynd/Aðsend

Mælt er með að bera réttinn fram með naanbrauði og sætkartöflufrönskum. 

Indverskur fiskur og franskar

Berið fram með naanbrauði og sætkartöflufrönskum.

Berið fram með naanbrauði og sætkartöflufrönskum. Ljósmynd/Aðsend

  • 500 g þorskhnakkar, skornir í bita 
  • Hveiti til að velta fiskinum upp úr
  • Olía til djúpsteikingar

Tempuradeig

  • 600 ml sódavatn
  • 250 g hveiti
  • 250 g kartöflumjöl
  • 200 g tikka masala-mauk
  • 10 g hvítlauksduft
  • 10 g paprikuduft
  • 20 g túrmerik
  • 10 g þurrkuð steinselja
  • 5 g chiliduft
  • 5 g kúmen
  • 50 g mangóchutney
  • 30 g garam masala-krydd
  • Salt og pipar eftir smekk

Sósa með gúrku og myntu

  • 350 g súrmjólk
  • 150 g majónes
  • 1 gúrka
  • 1 búnt mynta
  • 100 g síróp
  • 20 g garam masala-krydd
  • Safi úr 1 límónu

Aðferð

  1. Blandið öllu hráefninu í tempuradeigið saman í hrærivél.
  2. Veltið þorskbitunum upp úr hveiti og leggið þá í tempuradeigið.
  3. Hitið olíuna í 180 °C og djúpsteikið deighjúpaða fiskbitana. Notið hitamæli til að fylgjast með hitastigi olíunnar.

Sósa með gúrku og myntu

  1. Fjarlægið fræin úr gúrkunni og skerið hana í litla teninga.
  2. Takið myntulaufin af stilkunum og skerið í mjóar ræmur.
  3. Blandið súrmjólk, majónesi, sírópi, garam masala og límónusafa saman. Bætið gúrkunni og myntunni út í og hrærið saman.
  4. Berið fram með naanbrauði og sætkartöflufrönskum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅