Tónlist til að hlýja sér við

Sono Luminus er útgefandi plötu þeirra Páls Ragnars Pálssonar og Tui Hirv sem nefnist Layers. Ljósmynd/Brynjar Gunnarsson

Hjónin og tónlistarmennirnir Tui Hirv og Páll Ragnar Pálsson sendu fyrir skömmu frá sér breiðskífuna Layers sem inniheldur útsetningar þeirra á gömlum trúarlegum þjóðlögum frá Eistlandi, Norðurlöndunum og Bretlandi. Munu þau fagna útgáfunni í Hannesarholti á morgun, laugardaginn 7. nóvember, kl. 20.

Páll er gítarleikari og tónskáld og Tui söngkona og tónlistarfræðingur og koma þau úr ólíkum áttum, tónlistarlega séð. Páll hóf ferilinn í íslensku rokksenunni með hljómsveitinni Maus en Tui í akademísku skólakerfi Eistlands og kórmenningu þar í landi. Leiðir þeirra lágu saman í tónlistarakademíunni í Tallinn og hafa þau unnið saman að listsköpun meðfram öðrum verkefnum og Tui flutt tónverk Páls bæði hér á landi og erlendis.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅