Sex stiga skjálfti í Tókýó
Jarðskjálfti af stærðinni 6,1 reið yfir undan strönd Tókýó í dag, að sögn japanskra yfirvalda, en engin flóðbylgjuviðvörun var gefin út.
Skjálftinn, sem var grunnur, varð klukkan 19:39 að staðartíma, eða klukkan 10:39 að íslenskum tíma, í hafinu undan strönd Kanto-héraðs, að því er japanska veðurstofan (JMA) greindi frá á vefsíðu sinni.
Upptök hans voru um 169 kílómetra suðaustur af Asahi, sem er rétt austan við höfuðborgina Tókýó, samkvæmt Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna.
JMA sagði að mælst hefði „skjálftastyrkur 3“ á japönskum kvarða frá 0 upp í 7, sem þýðir að „nær allir innandyra finna fyrir skjálftanum“ og að „diskar í hillum geti glamrað“.
Engar fregnir bárust strax af tjóni eða meiðslum á fólki.
Eitt virkasta skjálftasvæði heims
Japan er eitt virkasta jarðskjálftasvæði heims, enda liggur landið ofan á fjórum stórum jarðskorpuflekum við vesturjaðar „Eldhrings“ Kyrrahafsins.
Á eyjaklasanum, þar sem um 125 milljónir manna búa, verða að jafnaði hundruð skjálfta á ári hverju og þar verða um 18 prósent allra jarðskjálfta í heiminum.
Langflestir þeirra eru vægir, þó að tjónið sem þeir valda sé misjafnt eftir staðsetningu þeirra og því á hvaða dýpi undir yfirborði jarðar þeir eiga upptök sín.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗