Saraa stígur fram eftir myndbirtingu Morgunblaðsins – „Sárt og niðurlægjandi“

Kona frá Palestínu sem starfar á leikskóla í Reykjavík segir að það hafi verið sárt að sjá ljósmynd af sér notaða við frétt þar sem fjallað var um fjárhagsaðstoð borgarinnar til fólks af erlendum uppruna.

Konan, Saraa Almasri, stígur fram í viðtali við Mannlíf.

Myndbirtingin olli talsverðu fjaðrafoki í gær og gagnrýndu fjölmargir myndaval Morgunblaðsins. Sögðu sumir að birting myndarinnar væri til þess fallin að ýta undir fordóma gagnvart fólki frá Mið-Austurlöndum.

Sjá einnig: Egill furðar sig á hvað vaki fyrir Morgunblaðinu:„Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi“

Egill Helgason fjölmiðlamaður sagðist til að mynda hafa fengið þær upplýsingar að konan væri einstæð móðir og hörkuduglegur starfsmaður sem sinnti störfum sínum af trúmennsku. Svo fór að lokum að myndinni var skipt út.

„Það var mjög sárt og niðurlægjandi að sjá ljósmynd af mér notaða sem aðalmynd í frétt Morgunblaðsins, þrátt fyrir að myndin hefði ekkert með efni fréttarinnar að gera. Mér fannst þetta bæði óviðeigandi og ábyrgðarlaust,“ segir Saraa í viðtalinu við Mannlíf.

Hún segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hún muni leita réttar síns vegna málsins.

„Ég vil ekki þurfa að standa í deilum eða fara út í lagalegt ferli vegna þessa máls. Ég hefði aldrei ímyndað mér að lenda í slíkum aðstæðum og þetta er ekki staða sem ég hefði nokkurn tíma óskað mér,“ segir hún meðal annars við Mannlíf þar sem nánar er fjallað um málið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅