Laut opnar í hádeginu í dag
Arnór Ingi Bjarkason opnar Laut í Norræna húsinu í hádeginu í dag. Fyrst um sinn verður staðurinn bistró og kaffihús en boðið verður upp á kvöldverð frá 18. nóvember. Ljósmynd/Aðsend
Veitingastaðurinn Laut í Norræna húsinu verður opnaður í hádeginu í dag. Til að byrja með verður starfsemin á daginn, en boðið verður upp á kvöldverð frá 18. nóvember. Að baki staðnum stendur matreiðslumaðurinn Arnór Ingi Bjarkason, sem vakti athygli Michelin með veitingastaðnum Skógi í Vilníus í Litáen.
Eins og áður hefur verið fjallað um á matarvefnum hlaut Skógur, veitingastaður Arnórs og eiginkonu hans, Linu Mariju Balčiūnaitė, meðmæli Michelin innan við ári eftir opnun. Þá sagðist Arnór vonast til þess að kvöldverðurinn á Laut vekti einnig athygli leiðarvísisins.
„Fyrst og fremst er stefnan sett á að gera eins góðan mat og við getum fyrir landsmenn og gesti landsins hverju sinni. Það er aldrei að vita með hitt,“ sagði hann.
Frá smurbrauði að föstudagssteik
Á bistróseðli Lautar má meðal annars finna smurbrauð með laxi eða tómötum, lambatartar með myntukremi og stökku rúgbrauði og bakaða bleikju með seljurót og beurre blanc. Þá verða súpa, salat og eftirréttur stundarinnar á boðstólum, ásamt hjónabandssælu og kleinum.
Hádegisréttur dagsins kostar 2.990 krónur, nema á föstudögum þegar boðið verður upp á steik á 3.490 krónur. Fiskréttir verða á þriðjudögum og fimmtudögum, kjötréttur á miðvikudögum og grænmetisréttur vikunnar verður einnig í boði.
Nýta hráefnið sem best
Að sögn Arnórs verður hádegisseðillinn meðal annars byggður á afskurði og hráefni sem verður afgangs við gerð kvöldseðilsins. „Þannig verður leitast við að nýta hráefnið sem best og mun hádegisseðillinn taka tíðari breytingum en kvöldseðillinn.“
Drykkjarseðillinn í hádeginu verður sömuleiðis breytilegur. Kvöldseðillinn verður umfangsmeiri og er áætlað að breyta honum á um þriggja mánaða fresti, auk smærri breytinga eftir framboði hráefnis.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/2/1690208.jpg)
