Einar Logi birtir myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjörnugrís – Forstjórinn segir hann „gerpi“
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 6. nóvember 2026 12:23
Einar Logi birti skuggalegt myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjörnugrís. Skjáskot/Instagram
Einar Logi Pétursson, sem var handtekinn vegna innbrota og sleppinga dýra í nokkrum búum á Kjalarnesi, hefur birt myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjörnugrís fyrr á þessu ári.
Á myndbandinu má meðal annars sjá særð svín og dauða grísi.
„Ég fór inn í svínabú á Kjalarnesi þar sem aðstæðurnar eru hræðilegar. Næstum öll svínin þar voru í þröngum búrum þar sem þau geta ekki snúið sér við. Ég sá mörg svín með legusár, dauð svín og önnur svín sem voru við það að deyja,“ segir Einar Logi í myndbandinu sem var birt á Instagram. „Þau eyða öllu lífinu sínu þarna sem getur numið allt að fjórum árum. Svipaðar aðstæður er hægt að sjá á öllum svínabúum á Íslandi. Það ætti engin lífvera að þurfa að þjást svona mikið allt lífið sitt. Við skulum hætta að borða svínakjöt.“
Í umfjöllun Vísis um myndbandið er rætt við Geir Gunnar Geirsson, forstjóra Stjörnugríss. Hann segir myndbandið ekki lýsandi fyrir starfsemina. Dýralæknar fylgist grannt með henni og eftirlit sé hvergi meira. „Auðvitað fer hann á alla staði þar sem er eitthvað kræsilegt fyrir svona gerpi að sýna,“ er haft eftir honum. „Við getum ekki bjargað því. Þær gjóta um nóttina, sumir eru aumingjar og eru dauðir inni í þeim,“ segir hann um dauðu grísina.
Einar Logi hefur játað innbrot í húsnæði Stjörnugríss og Reykjabúið, kjúklingabú í Mosfellsbæ. En eins og margir muna var einnig brotist inn í minnkabú og hundruðum minnka sleppt lausum út í náttúruna.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗