Þetta er það sem konum finnst mest fráhrindandi við karlmenn

Ný könnun sem gerð var fyrir tímaritið Playboy leiðir í ljós að það eru ekki endilega útlit sem skiptir konur mestu máli í fari karla. Persónulegt hreinlæti, framkoma og hegðun virðast skipta mun meira máli.

Alls tóku 1.006 konur og karlar þátt í könnuninni, sem var gerð í Þýskalandi. Niðurstöðurnar sýna að konur eru tilbúnar að líta fram hjá ýmsum líkamlegum göllum en eru mun síður umburðarlyndar gagnvart ákveðnum venjum og hegðun.

Það sem þeim finnst mest fráhrindandi

Það sem konum finnst allra mest fráhrindandi er vond líkamslykt. Um 92 prósent kvennanna sem tóku þátt í könnuninni sögðust telja óþægilega líkamslykt óaðlaðandi.

Nánast jafn margar konur sögðu niðrandi og fordómafulla framkomu sem og árásargjarna hegðun.

Þar á eftir kom slæmur andardráttur, dónaskapur í garð annarra og illa hirtar tennur. Yfir 87 prósent kvennanna töldu þessa þætti fráhrindandi.

Ósnyrtilegt útlit fór einnig fyrir brjóstið á konunum, en tæplega 87 prósent sögðust láta það hafa áhrif á hvort þær löðuðust að karlmanni. Fíkniefnaneysla og hávær, yfirgangssöm framkoma þóttu sömuleiðis óaðlaðandi hjá um 85 prósentum kvennanna.

Útlitið skiptir minna máli

Þegar kom að líkamlegu útliti voru konurnar hins vegar mun umburðarlyndari.

Um 45 prósent sögðust telja stóra bumbu óaðlaðandi og aðeins 26 prósent fannst skortur á líkamlegu formi fráhrindandi.

Til samanburðar sögðust 66 prósent kvennanna fælast hégómagirni hjá karlmönnum. Óhófleg áhersla á vöðvauppbyggingu þótti einnig meira fráhrindandi en ýmsir líkamlegir útlitsgallar.

Niðurstöðurnar benda því til þess að konur leggi almennt meira upp úr persónuleika og framkomu en fullkomnu útliti.

Það virðist heldur ekki vænlegt til árangurs að reyna að heilla konur með dýrum munum og stöðugum samanburði við aðra.

Alls sögðust 62 prósent kvennanna telja það óaðlaðandi þegar karlmenn flíka lúxusvarningi eða bera sig sífellt saman við aðra. Innan við helmingur karlanna sem tóku þátt í könnuninni gerði sér hins vegar grein fyrir því hversu fráhrindandi slík hegðun gæti verið.

Þá kom í ljós athyglisverður munur á því hvernig kynin líta á sjálfstraust. Um 69 prósent karla töldu mikilvægt að sýna eins mikið sjálfstraust og mögulegt væri. Hins vegar sögðu 83 prósent kvennanna að skortur á sjálfstrausti væri síður fráhrindandi en óhóflegt sjálfstraust.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅