Hjartnæm stund þegar Haaland hitti konuna sem kenndi honum fótbolta

Erling Haaland átti skemmtilega endurfundi við æskuvinkonu sína, Andreu Norheim, eftir 3-2 sigur Manchester City gegn RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu.

Haaland skoraði sigurmark City en hitti Norheim í leikmannagöngunum eftir leikinn.

Þau léku saman í yngri flokkum Bryne í Noregi en höfðu ekki sést í um átta ár.

Norheim, sem er 27 ára og leikur með kvennaliði Leipzig, var eina stelpan í liðinu á sínum tíma.

„Það eru kannski átta ár síðan við sáumst síðast. En þegar ég talaði við hann þekkti hann mig strax,“ sagði Norheim við Bild.

„Hann var enn nákvæmlega eins og þegar við vorum yngri. Það var virkilega gaman að hitta hann aftur.“

Norheim hefur áður verið sögð hafa kennt Haaland að spila fótbolta en hún gerir lítið úr því.

„Ég ætla ekki að monta mig af því. Við æfðum saman í mörg ár. Hann var alltaf góður leikmaður og mikill markaskorari.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅