Sprengjuhótanir bárust leikskólum í Reykjavík

Borgarritari staðfestir að sprengjuhótanir hafi borist leikskólum Reykjavíkurborgar. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sprengjuhótanir hafa borist leikskólum Reykjavíkurborgar. Þetta staðfestir Þorsteinn Gunnarsson borgarritari í samtali við mbl.is. Hótanirnar voru þó metnar ótrúverðugar af öryggisdeild ríkislögreglustjóra.

Eins og mbl.is greindi frá í gær voru leiðbeiningar ríkislögreglustjóra um viðbrögð við sprengjuhótunum sendar skólastjórnendum og öðrum stjórnendum Reykjavíkurborgar. Þá hafði ekki fengist staðfest hvaða stofnunum borgarinnar hótanirnar bárust.

Í fréttinni kom jafnframt fram að öryggisdeild ríkislögreglustjóra teldi hótanirnar eiga uppruna sinn utan Evrópu.

Þorsteinn Gunnarsson borgarritari segir að leiðbeiningar um viðbrögð við sprengjuhótunum hafi verið sendar stjórnendum borgarinnar í samræmi við hefðbundið verklag. Ljósmynd/Aðsend

Hluti af hefðbundnu verklagi

Þorsteinn segir Reykjavíkurborg vera í reglulegum samskiptum við öryggisdeild ríkislögreglustjóra um öryggismál.

Útsending leiðbeininganna sé hluti af hefðbundnu verklagi þar sem borgin taki við upplýsingum frá ríkislögreglustjóra og komi þeim áfram innan stjórnkerfisins.

Ekki hefur fengist staðfest hversu mörgum leikskólum hótanirnar bárust eða hvort gripið hafi verið til sérstakra öryggisráðstafana vegna þeirra.

Nánar má lesa um viðbrögð við slíkum hótunum í frétt mbl.is frá því fyrr í dag, þar sem birtar voru leiðbeiningar og sérstakur gátlisti ríkislögreglustjóra.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅