Arnar æði fylgdist með réttarhöldum í fimm klukkustundir
Arnar æði fylgdist með aðalmeðferð í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur í Héraðsdómi Reykjaness. Hann segir forvitni um hvernig réttarhöld fara fram hafa ráðið för. Samsett mynd/TikTok
Áhrifavaldurinn Arnar Máni Ingólfsson, betur þekktur sem Arnar æði, varði fimm klukkustundum í Héraðsdómi Reykjaness þar sem hann fylgdist með aðalmeðferð í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur.
Arnar segist hafa verið forvitinn um hvernig réttarhöld fara fram og langað til að kynnast málinu betur.
Á leið sinni í héraðsdóm sagði Arnar fylgjendum sínum á TikTok frá því hvað stæði til. „Ef þið vissuð ekki af því þá getur maður farið og fylgst með máli sem er verið að taka fyrir dóm,“ segir hann í myndskeiðinu.
Við færsluna skrifaði hann „SMÁ SIDEQUEST Í HÉRAÐSDÓM Í DAG✨“.
„Nóg af drama in the courthouse“
Þegar Arnar var kominn heim aftur sagði hann fylgjendum sínum að hann hefði verið í dóminum frá klukkan ellefu til fjögur. „Nóg af drama in the courthouse,“ segir hann.
Arnar segir að honum hafi þótt áhugavert að fylgjast með réttarhöldunum og hvetur aðra sem hafa áhuga á dómsmálum til að setjast í dómsal þegar mál sem vekur forvitni þeirra er til meðferðar. Sjálfur segist hann ætla að fara aftur.
Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu hófst á mánudag. Ákæruliðirnir eru hátt í sjötíu og snúa margir þeirra að meintum brotum gegn fyrrverandi kærasta hennar og sambýliskonu hans. Íris Helga er ákærð fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, skjalafals, rangar sakargiftir og brot gegn barnaverndarlögum.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗