Halldór lýsir erfiðri stöðu eftir 18 ára afmæli sonarins – „Á ég að setja hann út á götu?“
„Ég er ekki að biðja um nein sérstök forréttindi fyrir son minn. Ég vil bara að hann fái áfram þann stuðning sem hann þarf, hvort sem hann er 17 ára og 364 daga gamall eða nýorðinn 18 ára. Ég vil að hann fái að njóta þeirra réttinda og þess sjálfræðis sem fylgir því að verða fullorðinn, en að það sé líka tekið tillit til þess að hann er með fötlun og þarf áfram aðstoð og stuðning. Ég vil ekki þurfa að byrja upp á nýtt í hverju einasta kerfi, útskýra sömu greiningarnar aftur og aftur og berjast fyrir því að fá fólk til að skilja að þarfir hans hurfu ekki við það eitt að hann varð lögráða. Ég hef verið pabbi hans frá fyrsta degi,“
segir Halldór Þór Svavarsson í grein sinni, en hann á 18 ára son sem er með fötlun. Nú þegar sonurinn er orðið 18 ára hafi Halldór ekki aðgang að upplýsingum eða sömu heimildir til að koma fram fyrir hans hönd, fjárhagsleg aðstoð sem og önnur aðstoð fellur niður eða er verulega skert, þrátt fyrir að staða sonarins hafi ekkert breyst eftir 18 ára afmælisdaginn.
Segir Halldór son sinn hafa tekist á svið áskoranir sem flestir gera sér enga grein fyrir. Hann þekki styrkleika sonarins, takmarkanir, þarfir og drauma.
„Og ég veit líka að það að hann varð 18 ára breytti engu um það. Sonur minn varð fullorðinn í augum laganna. En hann varð ekki sjálfbjarga á einni nóttu. Mér finnst kominn tími til að við hættum að láta fjölskyldur fatlaðs fólks þurfa að berjast fyrir hverju einasta úrræði og förum að byggja upp kerfi sem fylgir einstaklingnum í gegnum lífið. Kerfi þar sem fólk þarf ekki að byrja aftur á byrjunarreit í hvert skipti sem það nær ákveðnum aldri eða færist á milli stofnana. Því spurningin stendur enn eftir,“ segir Halldór.
„18 ára – og hvað svo?“
„Hver ætlar að sjá til þess að þessi ungmenni fái áfram þann stuðning sem þau þurfa til að geta átt gott og innihaldsríkt líf? Og hversu lengi eiga þau og fjölskyldur þeirra að þurfa að bíða eftir alvöru lausnum.“
Bendir Halldór á að á miðvikudag þann 4. nóvember var haldið málþing undir yfirskriftinni „18 ára og hvað svo?“ um réttindi fatlaðra ungmenna, á vegum Öryrkjabandalags Íslands og sérnámsbrautar Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Málþingsgestir hafi þar fengið ágæta innsýn í hvernig kerfin okkar virka í raun og veru þegar fötluð og langveik ungmenni verða 18 ára. En það sem kom fram á málþinginu sé samt að sögn Halldórs bara brot af þeim erfiðleikum og áskorunum sem þessi ungmenni og fjölskyldur þeirra þurfa að glíma við á hverjum degi. Yfirskriftin „18 ára og hvað svo?“ gæti eiginlega ekki átt betur við hjá Halldóri þessa dagana. Staðan sem þar kom fram er nákvæmlega það sem hann stendur frammi fyrir núna.
„Sonur minn varð 18 ára. En hann varð ekki sjálfbjarga á einni nóttu“
Sonur Halldórs greindist með dæmigerða einhverfu og þroskahömlun þegar hann var aðeins fjögurra til fimm ára gamall og seinna bætist við ADHD,þráhyggja og kvíði svo eitthvað sé nefnt.
„Þetta eru ekki bara einhver tímabundin veikindi sem hann á eftir að hrista af sér eða eldast af honum. Þetta eru greiningar sem fylgja honum alla ævi. Frá því hann var lítill hefur hann þurft alls konar stuðning og þjónustu. Við höfum farið í gegnum heilbrigðiskerfið, þjálfunar stöðvar, sérdeildir í skólum, umönnunarmat, umönnunarkort, umönnunarbætur og alls konar önnur úrræði. Þetta hefur einfaldlega verið hluti af okkar lífi í meira en áratug. En svo kemur átján ára afmælisdagurinn. Og hvað gerist þá? Jú, allt í einu breyttist nánast allt, já allavega lagalega og fjárhagslega, en sonur minn er ennþá eins og með sömu þarfir og þarf sömu stýringuna.
Strákur sem hefur alla sína ævi þurft aðstoð við að sinna eigin þörfum, á erfitt með að skipuleggja daglegt líf og getur ekki sjálfur borið ábyrgð á öllum sínum grunnþörfum á nú bara allt í einu að geta staðið á eigin fótum. Eins og það fylgi einhver töfralausn með í afmælispakkanum á átján ára afmælinu.“
Segist Halldór sem í 18 ár hefur haldið utan um líf sonar síns, heilsu, þjónustu og allt sem því fylgir, nú ekki lengur hafa sama aðgang að upplýsingum eða sömu heimildir til að koma fram fyrir hans hönd.
„Hann er orðinn lögráða og auðvitað á hann að hafa sín réttindi og sjálfræði. En það að vera orðinn 18 ára þýðir ekki sjálfkrafa að maður geti séð um sig sjálfur. Það er samt svolítið merkilegt að þegar kemur að því að borga fyrir hlutina, sjá um þarfir hans og redda því sem kerfið nær ekki að sinna, þá er ennþá gert ráð fyrir að ég sé til staðar. Þá kemur hann mér nefnilega ennþá við.“
Þjónustuþörfin hefur ekki minnkað þvert á móti
Halldór segir lífið meira krefjandi eftir því sem sonurinn eldist, hann hafi þurft meira utanumhald, meiri leiðsögn og meiri stuðning á sama tíma og erfiðara og erfiðara er að fá þá þjónustu sem hann þarf. Halldór bendir einnig á skólakerfið og segir að þegar komið er í framhaldsskóla geti allt í einu orðið miklu erfiðara að fá sambærilegan stuðning.
Átján ára afmælið þýðir líka fjárhagslegt hrun
Halldór sem er öryrki segir að fjárhagslega hliðin skipti einnig máli, Hann hefur séð um son sinn fjárhagslega alla hans ævi og núna þegar sonurinn verður 18 ára missir Halldór greiðslur sem hafa hjálpað honum að sjá fyrir syninum og hafa einmitt verið ætlaðar til þess.
„En hvað á ég þá að gera? Á ég bara að segja við son minn „Jæja, nú ertu orðinn 18 ára, ég hef ekki lengur efni á að sjá fyrir þér, þannig að þú verður bara að flytja út“? Á ég að setja hann út á götu af því að ég á ekki lengur fyrir reikningunum og mat út mánuðinn? Er þetta virkilega það sem kerfið ætlast til? Því miður er staðan hjá mér í dag ekkert sérstaklega flókin. Hún er bara blákaldur veruleiki. Þegar ég hef borgað húsaleiguna, símareikninginn og lyfin, þá eigum við þrír feðgar eftir 50.000 krónur til að lifa á út mánuðinn. Fimmtíu þúsund krónur. Fyrir mat, nauðsynjar og allt annað sem kemur upp í daglegu lífi. Og eins og allir vita þá er ekki beint ódýrt að lifa á Íslandi í dag.“
Segir Halldór lítið gagn í öllum fallegum orðum stjórnmálamanna ef raunveruleikinn er sá að fjölskyldur eiga ekki einu sinni fyrir nauðsynjum þegar fötluð börn þeirra verða 18 ára.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗