Maður vill alltaf meira

Bjarki Már í leiknum við Úkraínu.

Bjarki Már í leiknum við Úkraínu. mbl.is/Eyþór

„Þetta var fagmannlega leyst hjá okkur. Það var róterað vel úr liðinu og allir ferskir og glaðir held ég,” sagði Bjarki Már Elísson, vinstri hornamaður íslenska landsliðsins í handbolta, í samtali við mbl.is um stórsigurinn á Úkraínu í undankeppni EM síðastliðinn miðvikudag.

Bjarki lék fyrri hálfleikinn vel, skoraði sex mörk og fékk síðan að hvíla í seinni hálfleik.

„Þegar maður er inni í leiknum vill maður auðvitað alltaf meira. En við erum með þessa góðu breidd í liðinu og það þarf að gefa öllum mínútur. Þetta var gott dagsverk,“ sagði Bjarki.

Hann er ánægður með standið á liðinu um þessar mundir þegar stutt er í stórmót.

„Tilfinningin mín er sú að þetta sé orðið ágætlega smurt hjá okkur. Við erum orðnir rútíneraðir, höfum þekkst lengi og spilað lengi saman. Það eru náttúrulega gæði í liðinu. Vonandi er þetta orðin einhver vél sem er að malla áfram,“ sagði hann.

Þá er breiddin í íslenska liðinu alltaf að aukast.

„Mér finnst hún alltaf vera að aukast. Maður sér alltaf fleiri og fleiri fara úr deildinni heima og út og gera góða hluti í deildunum í Evrópu. Það er bara jákvætt,“ sagði Bjarki.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅