Sprengjuhótanir vegna flugferða til og frá Prag

Erlent | AFP | 6.11.2026 | 11:29

Flugvél á Vaclav Havel-flugvellinum í Prag árið 2017.

Flugvél á Vaclav Havel-flugvellinum í Prag árið 2017. AFP/Michal Cizek

Að minnsta kosti átta flugferðir til og frá flugvellinum í Prag urðu fyrir sprengjuhótunum í dag, að sögn talskonu flugvallarins í samtali við AFP.

Falskar hótanir hafa beinst að flugferðum víða um Evrópu í þessari viku.

Lögreglan að störfum á flugvellinum í Kaupmannahöfn í tengslum við sprengjuhótanirnar. AFP/Liselotte Sabroe

„Hótanirnar varða komuflug frá Danmörku, Spáni og Bretlandi. Hvað brottfarir varðar er um að ræða flug til Hollands, Kýpur, Rúmeníu, Ítalíu og Bretlands,“ sagði talskonan Denisa Hejtmankova.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅