Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvernig getum við byggt brýr til friðar?

Friðurinn er grunnurinn að hamingju

Við eigum aðeins eina „Móður jörð“. Hún er heimili okkar allra, fær hún að lifa til að fæða og klæða komandi kynslóðir? Nú höfum við með allri þeirri þekkingu og tækni sem mannkynið býr yfir, þróað vopn sem geta lagt heilu samfélögin í rúst og í verstu tilfellum ógnað framtíð alls lífs á jörðinni.

Hvernig getum við réttlætt það?

Við höfum lært að lækna sjúkdóma, rannsaka alheiminn og tengja fólk milli heimsálfa á augabragði. En okkur hefur ekki tekist að tryggja að leiðtogar þjóða leysi ágreining án þess að senda fólk í stríð.

Við sjáum hörmulegar afleiðingar átaka í Úkraínu, á Gaza og víðar. Börn missa foreldra, fjölskyldur heimili sín og heilu kynslóðirnar framtíðaröryggi sitt.

Það getur ekki verið ásættanlegt að mannkynið hafi þróað svo öflug eyðingarvopn en ekki jafnöflugar leiðir til að koma í veg fyrir að þeim verði beitt.

Sameinuðu þjóðirnar verði miðpunkturinn

Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar eftir hörmungar síðari heimsstyrjaldar til að vernda komandi kynslóðir fyrir böli styrjalda. Í stofnsáttmálanum skuldbinda ríki sig til að leysa alþjóðlegar deilur með friðsamlegum hætti og virða fullveldi annarra ríkja. En það er ekki nóg að þessar reglur standi á blaði. Þær verða að hafa raunverulega þýðingu þegar hættan steðjar að.

Ég tel að þjóðir heims eigi að endurnýja og árétta skuldbindingar sínar gagnvart Sameinuðu þjóðunum og koma sér saman um viðurkennda sáttaleið sem hægt sé að virkja strax þegar stríð eða hættuleg átök eru yfirvofandi. Sameinuðu þjóðirnar þurfa að njóta trausts og hafa getu til að samhæfa slíkt starf. Við eigum ekki að stofna nýja alþjóðastofnun heldur styrkja þá sem við höfum nú þegar.

Enginn á að geta hafnað samtali án þess að svara

Hugsum okkur að ríki sem á í stríði óski formlega eftir aðstoð Sameinuðu þjóðanna við að koma á friðarviðræðum. Til dæmis gæti Úkraína óskað eftir því að samtökin könnuðu möguleika á viðræðum við Rússland.

Samkvæmt þeirri nýju sáttaleið sem ég legg til yrðu ríki skuldbundin til að svara slíkri beiðni innan ákveðins tíma og tilnefna fulltrúa til fyrstu könnunarviðræðna.

Þátttaka í slíkum viðræðum þýddi ekki að ríki samþykktu kröfur andstæðingsins eða afsöluðu sér réttindum sínum. Hún fæli í sér að þau tækju þátt í skipulagðri tilraun til friðsamlegrar lausnar.

Slík ný skuldbinding þyrfti sérstakt samkomulag ríkja. En hvers vegna ættu þjóðir heims ekki að geta komið sér saman um þessa lágmarksskyldu?

Enginn leiðtogi ætti að geta látið hjá líða að svara ákalli um friðarviðræður á meðan stríð geisa og mannslíf glatast.

Fólkið sem getur opnað dyrnar

Traust verður ekki til með fyrirmælum. Leiðtogi sem treystir einum einstaklingi treystir ekki endilega öðrum. Þess vegna þurfa Sameinuðu þjóðirnar að geta leitað til fjölbreytts hóps einstaklinga sem hafa áunnið sér traust í ólíkum heimshlutum.

Þar gætu verið fyrrverandi þjóðhöfðingjar, reyndir stjórnarerindrekar, friðarsinnar og aðrir sem geta náð eyrum þeirra sem ráða ferðinni. Enginn einn þarf að njóta trausts allra. En saman geta þessir einstaklingar myndað brýr milli þeirra sem annars tala ekki saman.

Sameinuðu þjóðirnar sinna þegar sáttamiðlun og fyrirbyggjandi stjórnarerindrekstri. Við þurfum að styrkja þá starfsemi og tryggja að hægt sé að bregðast strax við þegar hætta á átökum eykst.

Mikilvægasta friðarstarfið á að hefjast áður en fyrsta skotinu er hleypt af.

Ísland geti opnað dyrnar

Í grein minni á Eyjunni 3. nóvember lagði ég til að Ísland þróaði hlutverk sitt sem alþjóðlegur vettvangur friðarviðræðna.

Ísland hefur ákveðna sérstöðu. Við erum fámenn eyþjóð, með sterka lýðræðishefð, ríka menningu og reynslu af alþjóðlegu samstarfi. Höfðafundurinn árið 1986 sýndi að hér er hægt að skapa aðstæður fyrir mikilvægar viðræður milli stórvelda.

En Ísland á ekki að vera eini fundarstaðurinn. Sameinuðu þjóðirnar gætu samhæft friðarumleitanir en samningsaðilar ákveði hvar þeir treysta sér til að hittast. Ísland og önnur samstarfsríki gætu boðið fram örugga aðstöðu, trúnað og nauðsynlega þjónustu.

Það skiptir ekki mestu máli hvar samningaborðið stendur, heldur að aðilarnir setjist við það.

Reykjavíkursáttmáli um friðarviðræður

Ég legg til að Ísland hafi frumkvæði að alþjóðlegri vinnuráðstefnu árið 2027 í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar og reyndar friðarstofnanir.

Þar mætti vinna að Reykjavíkursáttmála um friðarviðræður, byggðum á stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum. Markmiðið væri að móta skýrt verklag: Hver tekur við friðarbeiðni? Hversu fljótt er brugðist við? Hverjir geta náð til leiðtoganna? Hvernig er fundarstaður valinn? Hvernig er tryggt að samningum verði fylgt eftir?

Við þurfum ekki nýjar stofnanir til að byrja. Við þurfum skýrari skuldbindingar, betra samstarf og raunverulegan vilja til að virða alþjóðalög.

Friðurinn er grunnurinn að hamingju

Í Qigong og lífsrækt legg ég áherslu á innri ró, virðingu og góðvild. Að við lærum að hlusta, skilja sjónarmið annarra og leysa ágreining án ofbeldis.

Sömu lífsgildi eiga að vera leiðarljós í samskiptum þjóða.

Friður merkir ekki að allir séu sammála. Hann merkir að við getum tekist á um ágreining án þess að eyðileggja líf hvert annars.

Við eigum aðeins eina „Móður jörð“. Enginn leiðtogi, ekkert ríki og engin kynslóð hefur siðferðilegan rétt til að stefna framtíð mannkynsins í voða með stríði sem getur þróast í óafturkræfa eyðingu.

Við þurfum að gera friðsamlega lausn deilumála að sjálfsögðum fyrsta kosti, ekki síðasta úrræði eftir að þúsundir hafa fallið.

Þjóðir heims þurfa að koma sér saman um leiðina til friðar. Sameinuðu þjóðirnar þurfa að vera miðpunkturinn og við Íslendingar getum lagt okkar af mörkum með því að opna dyrnar þegar þjóðir vilja setjast niður og semja.

Ein jörð – ein fjölskylda – ein framtíð.

Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, áhugamaður um að friður ríki og kennir Qigong – lifsraekt.is

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅