Vara við vanilludropum

Innlent | mbl | 6.11.2026 | 11:18 | Uppfært 11:36

Innköllunin á við allar framleiðslulotur.

Innköllunin á við allar framleiðslulotur.

Matvælastofnun varar við Bónus Vanilludropum frá H. Berg ehf. Möguleiki er á að hráefni sem notað var við framleiðsluna uppfylli ekki kröfur sem gerðar eru til matvæla.

Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað allar framleiðslulotur sem voru á markaði.

Viðskiptavinum Bónuss sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að nota hana og er bent á að þeir geti skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Innköllunin á við allar framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Bónus
  • Vöruheiti: Vanilludropar
  • Nettómagn: 50 ml (glas), 500 ml (brúsi) og 1 l (brúsi)
  • Strikamerki: 5694311960143, 5694311960341, 5694311960150
  • Best fyrir dagsetningar: Allar
  • Lotunúmer: Öll
  • Framleiðandi: H-Berg ehf. í Hafnarfirði
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Bónuss um land allt.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅