Landsliðsferillinn búinn í bili?
Cole Palmer, ein helsta stjarna Chelsea, var ekki valinn í enska landsliðshópinn í fótbolta að þessu sinni en Thomas Tuchel landsliðsþjálfari ákvað að skilja hann eftir utan hópsins.
Palmer var ekki valinn í enska landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið í Norður-Ameríku í sumar en Tuchel ákvað að gefa honum tækifæri í síðasta landsleikjaglugga. Palmer dró sig hins vegar úr hópnum vegna meiðsla.
Hann er nú heill heilsu á ný en það dugði ekki til að tryggja honum sæti í landsliðshópnum.
Valið hefur vakið athygli og Rob Dorsett, fréttamaður Sky Sports, segir ákvörðunina fela í sér skýra höfnun á Palmer.
„Það er ekki hægt að líta öðruvísi á þetta en sem mikla höfnun á Cole Palmer,“ sagði Dorsett.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗