Leggjast alfarið gegn vindorkuveri við Alviðru

Í skipulags- og áætlunarferli eru í undirbúningi um 30-40 vindorkuver um allt land.

Byggðarráð Borgarbyggðar leggst alfarið gegn því að fyrirhugað vindorkuver við Alviðru á Grjóthálsi verði sett í biðflokk rammaáætlunar. Þess í stað vill sveitarfélagið að virkjunarkosturinn verði settur í verndarflokk og þannig komið í veg fyrir fyrirhugaða orkunýtingu á svæðinu.

Þetta kemur fram í umsögn byggðarráðs um tillögu verkefnisstjórnar rammaáætlunar að flokkun sjö vindorkuverkefna. Umsögnin var samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að senda hana í samráðsgátt stjórnvalda.

Segja náttúruverðmæti mikil

Í umsögninni segir að Alviðra hafi fengið hæsta mat á náttúruverðmætum af þeim sjö vindorkukostum sem teknir voru til skoðunar. Þá sé gert ráð fyrir verulegum áhrifum á landslag, veiði og ferðaþjónustu í Borgarfirði.

Byggðarráð bendir jafnframt á að Alviðra hafi samkvæmt mati faghópa rammaáætlunar mest neikvæð samfélagsleg áhrif af kostunum sjö. Mikil andstaða sé við framkvæmdina í héraðinu og ekki hafi verið sýnt fram á hvaða efnahagslegi ávinningur myndi skila sér til nærsamfélagsins.

Telja biðflokk ekki eiga við

Byggðarráð gagnrýnir sérstaklega þá tillögu að setja virkjunarkostinn í biðflokk. Að mati ráðsins eigi biðflokkur aðeins við þegar frekari rannsókna eða upplýsinga sé þörf, en niðurstöður sérfræðimats liggi þegar fyrir.

„Biðflokkur er ekki lögboðin biðstofa fyrir virkjunaraðila til að reyna að knýja fram breytta afstöðu íbúa eða byggðarráðs þegar öll fagleg gögn mæla gegn virkjun.“

Þá bendir ráðið á að rannsóknarleyfi geti verið veitt á svæðum í biðflokki og að rannsóknir, svo sem slóðagerð og uppsetning mælingamastra, geti valdið raski á náttúru.

Byggðarráð áréttar að gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar heimili engin vindorkuver og telur flokkun Alviðru í verndarflokk samræmast best skipulagsstefnu sveitarfélagsins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅