Dularfullur líkfundur í Norðursjó – Enginn veit hver konan er
Dularfullt líkfundarmál er til rannsóknar í Þýskalandi eftir að lík konu fannst á strönd eyjunnar Juist í Norðursjó á mánudag.
Ástand líksins benti til þess að konan hefði verið látin um nokkurt skeið og telja réttarmeinafræðingar að nokkrar vikur eða jafnvel mánuðir séu liðnir frá andláti hennar
Þýska dagblaðið Bild greinir frá málinu en það var vegfarandi sem kom auga á lík konunnar á vesturhluta eyjunnar, sem er vinsæll sumarleyfisstaður undan ströndum Neðra-Saxlands.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var líkið komið svo langt í rotnun að ljóst þótti að konan hefði verið látin um nokkurt skeið. Réttarmeinafræðingar telja að hún hafi látist fyrir nokkrum vikum eða jafnvel nokkrum mánuðum.
Krufning hefur ekki leitt í ljós dánarorsök en lögregla segir ekkert hafa komið fram sem bendi til þess að konan hafi orðið fyrir ofbeldi eða að dauða hennar hafi borið að með saknæmum hætti.
Það sem gerir málið sérstaklega dularfullt er að lögregla telur mögulegt að lík konunnar hafi borist til eyjunnar um langan veg með hafstraumum. Óveður dagana fyrir líkfundinn gæti hafa orðið til þess að líkið skolaði á land.
Lögregla hefur því hafið samanburð við tilkynningar um horfið fólk, ekki aðeins í Þýskalandi heldur einnig í öðrum löndum.
Það litla sem vitað er um konuna er að hún var á miðjum aldri og um 158 sentímetrar á hæð.
Rannsóknarlögreglumenn binda nú vonir við að DNA-rannsókn geti varpað ljósi á hver konan var og hugsanlega hvaðan hún kom.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗